samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hjálmarssyni fyrir andsvörin. Gott að heyra að hann er á svipaðri línu. Ég bjóst svo sem ekki við öðru. En meira varðandi þennan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Nú liggur það fyrir að hann er að stóru leyti ófjármagnaður. Það á að fjármagna stóran hluta, m.a. af veggjöldum og tafagjöldum o.s.frv. Ekkert af þessu hefur komið inn á borð þingsins. Hæstv. innviðaráðherra undirritaði samkomulag fyrir hönd ja, ég veit ekki fyrir hönd hvers, fyrir hönd ríkisstjórnar, án nokkurrar aðkomu þingsins. Hann undirritar samkomulag við sveitarstjóra, borgarstjóra og bæjarstjóra hérna á höfuðborgarsvæðinu. Þarna eru undir gríðarlegir fjármunir. Mig myndi langa til að fá skoðun þingmannsins á því: Telur hann það boðlegt fyrir Alþingi að svona samkomulag sé gert með svona gríðarmiklar fjárskuldbindingar sem eru ófjármagnaðar og á að fjármagna eftir á með alls konar gjöldum. Finnst honum það boðlegt að það sé bara undirritað hér úti í bæ án þess að það sé borið undir þingið? Mér finnst það ekki. Mér finnst það mjög skrýtið vinnulag.
Síðan langar mig líka að fá afstöðu þingmannsins til eins. Hann minntist sjálfur á Hvalfjarðargöngin. Það hefur verið rætt um það einhvers staðar að hefja jafnvel gjaldtöku aftur í göngum sem eru að fullu uppgreidd og hefur verið skilað til ríkisins. Mér finnst það röng leið og óásættanleg. Mér þætti gaman að heyra hver skoðun þingmannsins er á þeim möguleika, sem ég vona sannarlega að sé fjarri því að verða að veruleika.