157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:04]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir með þingmanninum. Sjálfum finnst mér þetta erfitt. Ég er nú almennt svona orðvar maður og vil gæta orða minna en mér finnst það í það minnsta ekki heiðarlegt gagnvart umræðunni, það er ekki heiðarlegt gagnvart okkur þingmönnum, það er heldur ekki heiðarlegt, finnst mér, gagnvart kjósendum að vilja ekki setja fram hina raunverulegu áætlun. Eitthvað þarf að gera. Það er ekki nóg að lofa því, eins og hv. þingmaður kom inn á; að ráðast í einhverjar samgöngubætur eða að undirrita eða hvað það nú er, heldur þarf auðvitað að fjármagna þetta. Það liggur alveg ljóst fyrir. En svo er þessi tregða til að segja frá því, eins og að það sé hægt að sópa því undir teppið, sem er auðvitað ekki hægt. Þá tengi ég þetta akkúrat við upphaf ræðu minnar sem er þessi staðreynd að tekjurnar, skattarnir sem greiddir eru af umferðinni, eru miklu hærri heldur en framlögin til samgöngumála. Það munar þarna kannski 20 eða 30 milljörðum en samt er alltaf verið að auka álögurnar. Það er óheppilegt að það sé verið að nota óumdeilda þörf fyrir innviðauppbyggingu, að hún sé misnotuð í opinberri umræðu til þess að réttlæta almennar skattahækkanir. Það er það sem þessi ríkisstjórn hefur gert ítrekað og er auðvitað enginn sómi að.