157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Við höldum áfram að fara yfir þetta viðamikla plagg sem samgönguáætlun er og eðli málsins samkvæmt, þegar um svona stórt mál er að ræða, sýnist bæði sitt hverjum og margt sem þarf að velta fyrir sér og spyrja um og reyna jafnvel að fá einhverju breytt, frú forseti, ekki væri það nú verra þó að það sé í ljósi þingstarfanna í vetur kannski fullmikil bjartsýni en lengi má manninn reyna.

Mig langar við upphaf þessarar stuttu ræðu hérna, frú forseti, af því að ég var með ákveðinn lista sem ég vann með í minni fyrstu ræðu og ræðu nr. 2 og er búinn að nefna þau atriði þó að ég eigi eftir að kafa dýpra ofan í hvert og eitt. En ég held að eftir standi, ef frá er talið andsvar sem ég fór í við hv. þm. Jens Garðar Helgason, að nefna einhvern besta jarðgangakost Íslendinga. Það er bæði samgöngulega séð og ég hef það líka en einnig eftir jarðfræðingum að það eru svokölluð Lóns- eða göng undir Lónsheiði sem myndu tryggja Austurlandi, hvað á að segja, nútímalegar samgöngur við Suðurland því eins og fram hefur komið í máli fleiri þingmanna en þess sem hér stendur, er Austurland að teiknast upp og hefur verið að teiknast upp á undanförnum árum sem einhvers konar eyja innan Íslands, samgönguleg eyja, sérstaklega þegar kemur að þungaflutningum þar sem vegir og samgöngumannvirki, brýr og annað, á þessu landsvæði eru orðin fyrir áratugum síðan löskuð og í dag sum hver orðin að einhvers konar minjasafni, samanber brú yfir Lagarfljót, brú yfir Jökulsá á Fjöllum o.s.frv.

Þessi jarðgöng sem ég er hér að vísa til yfir Lónsheiði væru að fara í gegnum líklega elsta berg Íslands, harðasta berg Íslands, og það hljómar kannski einkennilega fyrir þá sem ekkert hafa velt því fyrir sér hverjir kostir og gallar eru þegar kemur að jarðgangagerð. Er það kostur í jarðgangagerð að vera með jarðlögin eða berglögin hörð en ekki að þurfa að fara jafnvel á tiltölulega fáum kílómetrum í gegnum mismunandi setlög með mismunandi herslu? Það flækir málið. Þarna er heldur líka ólíklegt að um sé að ræða, samkvæmt mínum upplýsingum, að menn myndu lenda í miklum vatnsmálum.

Þarna eru mjög stutt göng nefnd einhvers staðar í svo fjarlægri framtíð að ég held að það sé bara með síðustu setningunum í þessu plaggi sem við köllum samgönguáætlun. Það er auðvitað miður. En til að koma slíkum göngum framar eru til einhverjar pólitískar leiðir. Því miður er það umræðuefni sem hér hefur fléttast inn í þessa umræðu um samgönguáætlun, stofnun innviðafélags, afar ólíklegt form til að flýta fyrir framkvæmd slíkra ganga, einfaldlega vegna þess, frú forseti, að arðsemin myndi ekki uppfylla a.m.k. C-hluta í slíku félagi. Þetta yrðu þá væntanlega að vera A-3 göng, falla inn sem A-3 í slíku innviðafélagi, og þegar við erum komin inn í A-3 hlutann þá erum við búin að segja í raun og veru að framkvæmdin standist ekki þær arðsemiskröfur sem þarf til þess að innviðafélagið sýni slíkum framkvæmdum áhuga. Það kostar því einhverja verulega aðkomu ríkisins. Það fer auðvitað eftir áætlaðri umferð hver sú aðkoma yrði í prósentuhlutfalli. Ef við tökum t.d. mið af Fljótagöngum sem hafa verið rædd hér dálítið þar sem innkoma ríkisins yrði sjálfsagt með svipuðum hætti og í þessum göngum, þá er það nálægt 90%. Þannig að þetta er bara svona til að hnykkja á því að þarna eru mikilvæg göng, frú forseti, sem er afar ólíklegt að þetta innviðafélag, sem hér er boðað sem einhvers konar töfralausn á öllum hlutum, myndi ekki einu sinni ná utan um þetta.