samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og gat ekki orða bundist því hann var að ræða hér aðeins um Austurland. Ég veit að hv. þingmaður er þingmaður Norðausturkjördæmis og hér hélt ég ræðu í gær og vísaði í bréf sem við, allir þingmenn, fengum frá bæjarstjórn Múlaþings. Þá kom hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, sem jafnframt er framsögumaður nefndarálits meiri hlutans í samgönguáætlun, upp í andsvar við mig og hélt því fram að Austurland þyrfti ekkert að væla, þau kæmu bara mjög vel út úr samanburði í þessari samgönguáætlun, væru næst á eftir Suðurlandi í fjárframlögum. Ég viðurkenni að ég hef ekki lagst yfir þessar tölur en auðvitað er verið að færa göng sem voru tilbúin og stóð til að fara í næst, Fjarðarheiðargöng, yfir í Fljótin, sem reyndar tilheyra næstum því sama kjördæmi en svona alveg á hinum enda landsins og ekki er nú mikið um vega- og samgöngubætur á Austurlandi.
Ég var aðeins að fara yfir það að það væri verið að hætta við eitt hringtorg sem hefði þá tengst væntanlegum göngum og setja þá fjármuni í staðinn í Öxi. Upphaflega hafði ég verið að ræða það að mér hefði verið boðið í bíltúr yfir Öxi til að sýna fram á það hversu óbærilegur sá vegur er og engan veginn ásættanlegur sem samgönguleið þarna á milli innan sveitarfélagsins. Þannig að mig langaði kannski bara að spyrja hv. þingmann sem þingmann kjördæmisins: Er það svo, eins og hv. þingmaður og framsögumaður nefndarálits meiri hlutans heldur fram, að Austfirðingar geti bara verið glaðir, og Austurlandið, með þá fjármuni sem þeim eru ætlaðir í samgönguáætlun?