157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:28]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir spurninguna. Nei, þetta er auðvitað fjarri sanni, algerlega fjarri sanni. Þetta bréf sem við fengum sent ásamt öllum umsögnunum sýnir auðvitað allt aðra mynd. Ég er hins vegar búinn að sjá þau gögn sem ég reikna með að hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir hafi verið með í pontunni þegar hún var að rökstyðja mál sitt. Þannig háttaði til að ég hitti hana hér á göngum og sá þessar prósentutölur sem einhvern veginn áttu að fá okkur þingmenn kjördæmisins til að róa okkur því að við værum nú aldeilis ekki að koma svo illa út úr þessu. Þetta er hluti af þessu leikriti sem er verið að búa til í kringum innviðafélagið því ef arðsemiskröfunum er fullnægt þegar innviðafélagið fer í framkvæmdir og fer að velja sér framkvæmdir eins og það frumvarp er skrifað þá verða stóru og miklu framkvæmdirnar, þær arðbærustu, hér á Suðurlandinu. Þær fara þá út fyrir samgönguáætlunina sem slíka og inn í sjálfstætt félag, einhvers konar ríki í ríkinu. Þá riðlast öll prósentutalan á milli landshluta af því að allar framkvæmdirnar sem eru í gangi og verða í gangi verða ekki hluti í þessum prósentuútreikningi. Hér er um að ræða — ég veit ekki hvað við eigum einu sinni að kalla þetta, hv. þingmaður, annað en bara það sem þetta er, tilraun til að villa fólki sýn því að framkvæmdir aukast ekki á Austurlandi eða í Norðausturkjördæmi við það að fara að leika sér með prósenturnar inn eða út úr innviðafélaginu, en það er það sem þessi niðurstaða byggir á.