157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar útskýringar og það útskýrir kannski ýmislegt einmitt í þessu öllu saman. Ég ætla að fá að taka það fram, virðulegur forseti, að ég hef lýst því yfir að mér líst vel á hugmyndir um innviðafélag. Það fer allt eftir því hvernig það er útfært og við eigum eftir að taka þá umræðu hér í næstu viku væntanlega. En ég stóð reyndar í þeirri meiningu, virðulegur forseti, að þarna væri kannski verið að taka heildarfjármagnið til landshlutanna samkvæmt samgönguáætlun þannig að mögulega væri fjármagn til flugvallarins á Egilsstöðum líka að rugla þennan samanburð. En við sem höfum verið hér í einhvern tíma þekkjum auðvitað þær beiðnir og bónir sem hafa verið í langan tíma um mikilvægi þess að byggja upp flugvöllinn á Egilsstöðum og einhvers konar flughlað. Við sáum það bara síðast í vetur þegar þurfti að nota flughlaðið á Akureyri, sem loksins er komið til, að það þurfti líka að nota Egilsstaðaflugvöll þó að hann hefði bara getað tekið á móti takmörkuðum fjölda flugvéla.

Ég veit að uppbygging flugvallarins er líka mikið hagsmunamál fyrir svæðið en ekki síður er það öryggisatriði fyrir Ísland og þar hélt ég kannski að varaflugvallargjaldið væri að spila einhverja rullu og ef ég skil þetta rétt þá er það nú þannig. Væntanlega er inni í þessum tölum um Austurlandið verið að tala um flugvöllinn líka og ég held að það sé nú kannski ekki alveg sanngjarnt að horfa á það í þessu ljósi þegar verið er að ræða samgöngur í fjórðungnum og það sé eðlilegra að horfa á nýframkvæmdir vega og viðhaldsverkefni og bera það saman. Annars erum við svolítið að bera saman epli og appelsínur þar sem ekki eru flugvellir sem eiga að virka sem einhvers konar varaflugvellir. En án efa er það líka rétt sem hv. þingmaður kemur inn á varðandi innviðafélagið og hvaða áhrif það getur haft á þessa útreikninga milli landshluta.

Að því sögðu vil ég líka nefna það sem ég nefndi í gær og hef reyndar nefnt áður, að kannski þurfum við bara að fara að huga að ákveðnu fjármagni í hvern og einn landshluta og vinna það svo í góðu samstarfi við viðkomandi sveitarstjórnir hvernig á að verja þeim fjármunum því þessi samkeppni er líka alltaf svolítið erfið á milli landshluta. En það sést svo bersýnilega í þessari samgönguáætlun að það eru tekin göng sem hafa lengi verið á áætlun og þau eru sett í 3. sæti og önnur göng sem eru ekki tilbúin sett þar á undan.