157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:32]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir bæði viðbrögðin við svörum mínum og svo framhaldsspurningar. Þetta er hárrétt hjá þingmanninum, algerlega hárrétt. Inni í þeim talnabálki sem liggur til grundvallar þessari prósentuniðurstöðu um skiptingu á fjármagninu eru bæði flugvöllurinn á Egilsstöðum og hafnarframkvæmdir. Ef það er orðið svo, frú forseti, að það að fjórðungur hýsi varaflugvöll, eins og Reykjavík, Akureyri, Egilsstaðir, á að koma til frádráttar á framkvæmdum í vegakerfinu þá veit ég ekki alveg hvort menn vilja yfirleitt hýsa slíkan völl. Það gæti bara orðið vafasamt mál, frú forseti, ef maður orðar það þannig, að sitja uppi með varaflugvöll ef það á að koma niður á uppbyggingu samgöngumannvirkja í fjórðungnum. En svona er þetta nú samt. En þegar þetta er skoðað, eins og ég sagði við hv. þingmann — ég tek undir með hv. þingmanni, að ég er ekki á móti innviðafélagi. Ég óttast hins vegar hvernig það frumvarp er skrifað, að það gæti orðið einhvers konar ríki í ríkinu sem yrði bara ótengt pólitískum vilja, stýrðist eingöngu af arðsemiskröfum sem yrði til þess að einhvers konar hilluvara yrði í boði af framkvæmdum. Innviðafélagið velur að sjálfsögðu það sem er arðbærast og tekur verkefnin í þeirri röð sem gefur þá augaleið að þær framkvæmdir verða ekki úti á landi, þær verða hér þar sem umferðin er mest og þá þarf að fara í þetta A3-fyrirbæri sem er í raun og veru ekkert annað en ríkisframkvæmd því það þarf í flestum tilfellum svo gríðarlega innspýtingu frá ríkinu til að þær framkvæmdir fari af stað. Að öðru leyti tek ég undir með hv. þingmanni og þess vegna erum við að fá svona bréf og umsagnir. Norðausturkjördæmi er hreinlega að fá einn á lúðurinn í þessari áætlun. Svo getur fólk farið í alls konar talna- og prósentuleikfimi til að reyna að réttlæta hvernig niðurstaðan varð. Það heldur bara ekki.