157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:35]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina og mig langar til að halda áfram á svipuðum nótum tengdum innviðafélaginu af því að ég heyri að það er samhljómur í þessum sal um mikilvægi innviðafélagsins. Það eru hins vegar bara útfærslurnar sem skipta máli og það eru aðrar áhyggjur sem ég hef sömuleiðis. Mig langar til að spyrja hvort hv. þingmaður deilir þeim með mér. Það er í raun og veru að þegar við förum að færa verkefni yfir í innviðafélagið sem eru arðbær, sem er vel, þá eiga að skapast tækifæri til að hafa stærri köku, meira fjármagn inn í framtíðina fyrir aðrar framkvæmdir sem eru þá minna arðbærar. Þá erum við að tala um langflestar framkvæmdir fyrir utan Hvítár-Hvítársvæðið og kannski Eyjafjörð.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann geti tekið undir með mér að það gæti verið örlítill freistnivandi hjá núverandi ríkisstjórn og framtíðarríkisstjórnum að bæta ekki í eða jafnvel skera niður til samgönguáætlunar í staðinn fyrir að sækja þar fram á sama tíma og innviðafélagið tekur til sín verkefni, sem sagt að óarðbæri hlutinn skreppi saman í fjárlögum eða fjármálaáætlunum framtíðarinnar.