samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil tengja þetta að ákveðnu leyti. Mér finnst mjög áhugaverð þessi umræða hv. þingmanns um möguleg þensluáhrif og hvatann til að fara í færri verkefni sem falla undir samgönguáætlun en ekki innviðafélag til að stýra verðbólgu eða hafa áhrif á þenslu.
Það má setja það í samhengi við orkuframkvæmdir. Áður fyrr var það ríkið sem tímasetti framkvæmdir. Oft var það þannig að þær voru tímasettar þegar slaki var í hagkerfinu og þegar þurfti innspýtingu sem hluta af hagstjórn að ákveðnu leyti. En núna er það þannig að það er Landsnet í raun og veru sem ákveður framkvæmdatíma og virkjunaraðilar. Við sjáum það raðast upp núna vegna margra kærumála og annars að það er farið í mörg verkefni samtímis, sem er auðvitað spennandi fyrir uppbyggingu en er líka þensluhvetjandi.
Ég get tekið undir með hv. þingmanni. Hver þessi hlið málsins verður er atriði sem mér finnst ekki hafa fengið neitt rými í umfjölluninni. Við viljum alls ekki að verkefni sem eru minna arðbær sitji eftir vegna þess að ekki sé gott að fara í þau núna út af stöðu í hagkerfinu hverju sinni.
Ég vil fara sérstaklega í tímasetningarhlutann á þessu öllu og spyrja: Finnst hv. þingmanni, þó að talað sé nú um Fjarðarheiðargöng númer 2 eða 3 og miðað við stöðu fjármálaáætlunar, sem við ætlum að ræða, (Forseti hringir.) vera einhver trygging þess í gögnunum, eins og þau birtast okkur núna, að það verði raunveruleg tímasetning á þessu mikilvæga verkefni?