samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég ætla að byrja á síðustu spurningunni. Til að sóa tímanum ekki mjög lengi þá er svarið nei. Mér finnst engin trygging vera til staðar. Ef eitthvað er sýnir þessi samgönguáætlun að það sem er mörg ár fram í tímann er bara eitthvað sem næsta ríkisstjórn breytir. Það er það sem við upplifum og höfum því miður upplifað nokkrum sinnum.
Varðandi framkvæmdir þessara félaga sem verða einhvers konar sjálfstæð félög getum við nefnt opinber hlutafélög. Fjárlaganefnd Alþingis situr á fundum sínum dögum saman við að reyna að finna út úr því hvernig koma megi skútunni okkar réttum megin við núllið, helst talsvert réttum megin, því að við þurfum eitthvert svigrúm vegna óvæntra uppákoma. Þar eru menn að ræða allt niður í 100 millj. kr. hér eða þar. Það er oft mikil vinna. Síðan þegar fer að hilla undir lok þeirrar vinnu kemur tilkynning frá Isavia um einhverja framkvæmd sem þeir ætli í upp á milljarða króna og síðan kemur Landsvirkjun næst með eitthvað upp á milljarða króna.
Hér sé ég ekki betur en sé að fæðast annað slíkt félag. Þess vegna held ég að sé svo mikilvægt að það hafi einhverja pólitíska tengingu og lúti einhvers konar pólitískri verkstýringu. Í okkar litla hagkerfi, að mínu mati, megum við ekki við fleiri svona risum sem eru algjörlega ótengdir því sem Alþingi hverju sinni eða almenningur í landinu kallar eftir og vill að því er varðar framkvæmdir á einhverjum stöðum. Það er verið að skera það niður af því að það er allt í járnum og við erum að reyna að ná skuldum niður. Þá erum við að bæta í þessi félög sem við höfum enga stjórn á.
Það er auðvitað frábært að fá fjárfestingu inn. Ég er ekki á móti innviðafélagi, ég tala nú ekki um ef hingað koma erlendir fjárfestar (Forseti hringir.) með mikla reynslu af fjárfestingum í uppbyggingu samgöngumannvirkja og mikla þekkingu. Auðvitað myndi maður fagna því. En þessi pólitíska tenging verður að vera til staðar.