157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:44]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum nú gríðarlega mikilvæga áætlun, samgönguáætlun. Mig langar í þessari ræðu að beina sjónum mínum að Suðurnesjum sérstaklega og að þeim miklu möguleikum sem þar eru og við verðum að setja í forgang í samhengi við samgönguáætlun.

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á nýjustu fréttum sem varða uppbyggingu á svæðinu í samhengi við Grindavík. Nú berast þær fréttir að Þórkatla hafi ákveðnar takmarkanir á gistingu hjá þeim sem hafa farið þá leið að selja húsin til Þórkötlu en langar að byggja upp framtíð sína í Grindavík. Mig langar að byrja á því að skora á hæstv. ríkisstjórn að vinna með Grindvíkingum en ekki á móti þeim og að vinna að því að hlutirnir geti haldið áfram nú þegar sóknarhugur er í samfélaginu og fólk vill byggja upp framtíðina. Við verðum að snúa bökum saman í þessari uppbyggingu. Það skiptir máli að stjórnvöld, stofnanir og félög og allir komi saman að þeirri uppbyggingu. En ég vil byrja á að skora á hæstv. ríkisstjórn að taka þetta mál sérstaklega alvarlega.

Mig langar jafnframt að beina sjónum heilt yfir að innviðum á svæðinu sem hafa ekki haldið í við þá öflugu uppbyggingu sem hefur átt sér stað. Við höfum nánast hvergi á landinu séð jafn mikla fólksfjölgun eins og á Suðurnesjum.

Mig langar að byrja á hafnamálum. Það er ljóst að stór tækifæri tengjast hafnarsvæðinu í Helguvík. Tækifæri tengjast því líka að flytja Landhelgisgæslu Íslands á svæðið og byggja þar upp heildstæða björgunarmiðstöð eða starfsemi Landhelgisgæslunnar á einum stað sem fer vel saman við starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Þannig gætum við byggt upp lykilöryggisinnviði okkar í flug- og sjósamhengi á einum stað.

Mig langar að hvetja til þess — þó að það sé ekki sett fram af núverandi meiri hluta — að um leið og svigrúm skapast umfram þessa rúmu sex milljarða króna sem þegar hefur verið ráðstafað í tillögum nefndarinnar, eins og lagt er upp með að gerist með núverandi innviðafélagi, verði það nýtt í að styrkja þessa framtíðarsýn.

Öflugar hafnir á þessu svæði munu borga sig margfalt. Við erum að tala um lykilsvæði þegar kemur að öryggismálum og sjávarútvegi á Íslandi. Við þurfum að vera með augun á boltanum þarna.

Í samhengi við vegasamgöngur skiptir miklu máli að við tengjum flugvöllinn við aðrar æðar. Ég vil segja að það eru vonbrigði að það að klára tvöföldun Reykjanesbrautar sé ekki í forgangi í fimm ára áætluninni vegna þess að það sem er ekki í fimm ára áætluninni er ekki fjármagnað, alveg eins og fjallað var um áðan. Þá eykst óvissa á þessu svæði, sem er svo mikilvægt fyrir öryggismál, ferðaþjónustu og íbúa og í samhengi við atvinnuuppbyggingu heilt yfir.

Því vil ég leggja ríka áherslu á að það verkefni sé fært framar um leið og svigrúm skapast, sem það á að gera, meira en þessir sex komma eitthvað milljarðar króna sem nú er gert ráð fyrir ef innviðafélagið verður árangursríkt. Þess vegna get ég tekið undir orð allra þeirra sem hafa fjallað um hversu mikilvægt það er að textinn sé nákvæmur og skýr og að hægt sé að framkvæma hluti í takt við þau markmið sem horft er á. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Ég gæti nefnt aðra hluti eins og tengivegi. Ég fagna því að verið sé að horfa á hækkun tengivegapotts í samgönguáætlun. Varðandi tengivegi get ég sérstaklega nefnt veg nr. 425 sem þarf að horfa á. (Forseti hringir.) Síðan get ég nefnt sjóvarnir og almenningssamgöngur. (Forseti hringir.) Allt eru þetta mikilvæg verkefni fyrir þetta einstaka svæði. (Forseti hringir.) Við þurfum að setja þau í skýran forgang.