samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar ræðu. Hún kom dálítið mikið í þessu innleggi sínu inn á uppbygginguna í Grindavík, Þórkötlu, og kom svo inn á vegasamgöngurnar og ræddi fimm ára áætlunina sem er sem sagt þessi framkvæmdaáætlun til fimm ára í samgönguáætlun. Hún er í rauninni kannski það eina sem hægt er að treysta vegna þess að áætlun til 15 ára — eins og maður hefur séð, eins og sá innviðaráðherra sem hér situr, hann kippir fyrri ákvörðunum úr sambandi, t.d. um Fjarðarheiðargöng. Aftur vil ég ítreka að ég skil mjög vel vonbrigði Austfirðinga hvað það varðar. Ég veit að þingmaðurinn kom ekkert inn á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, ég man ekki hvort hún kom inn á hann í sínum fyrri innleggjum, en mig langar að heyra aðeins ofan í þingmanninn varðandi aðkomu þingsins að þeim sáttmála, hún er í rauninni engin sem mér finnst bagalegt vegna þess að þar er innviðaráðherra að skrifa undir samning við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í rauninni án nokkurrar fjármögnunar en sumir vilja meina að þar með sé verið að skuldbinda Alþingi. Þetta er gjörsamlega án aðkomu Alþingis. Finnst þingmanninum ekki eðlilegt (Forseti hringir.) að slík áætlun fái almennilega umfjöllun í þinginu og verði í rauninni samþykkt hér (Forseti hringir.) vegna þess að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er partur af samgönguáætlun. — Afsakið.
(Forseti (EÁs): Forseti biður þingmenn að virða ræðutíma.)