157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:52]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég get sagt, bara í sinni einföldustu mynd, að svarið er já. Mér finnst það eðlilegt þegar við erum að tala um svona risavaxnar fjárhæðir í sáttmála sem er auðvitað hugsaður fyrir höfuðborgarsvæðið en hann þjónar líka landinu í heild. Við erum að tala um höfuðborg Íslands og hvað þýðir það? Það þýðir að höfuðborgin og samgöngur til og frá henni þurfa að vera hannaðar líka með hagsmuni íbúa annars staðar í landinu í huga. Mér finnst það eðlilegt út frá þeim fjárútlátum sem við erum að tala um en mér finnst það líka eðlilegt út frá þessari heildarmynd. Því tek ég heils hugar undir þá sýn sem ég held að hv. þingmaður hafi, að þessi sáttmáli þurfi að koma fyrir þingið. Mig langar í því samhengi að nefna að það rímar ágætlega við þær áhyggjur sem fólk hefur af innviðafélaginu. Það eru áhyggjur af verkefnum og þeim verkefnum sem eiga að færast yfir til innviðafélagsins og að þetta samspil fái ekki fullnægjandi þinglega meðferð.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að textinn, þá á ég við lagatexta og greinargerðina sem kemur með frumvarpinu og nefndarálitið sömuleiðis, tali mjög inn í það og það sé alveg skýrt að möguleg fjárútlát til verkefna sem fara í dótturfélag hjá innviðafélaginu eða bara verkefni sem er eitthvert samtal um, séu kynnt og fái ákveðna umfjöllun á þinginu. Það er þetta heildarsamhengi. Við getum ekki verið að grafa undan samgönguáætlun með því að útvista ólíkum hlutum hennar og þar með minnka vægi þingsins heilt yfir í þessu samhengi.