samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég lofa að halda mig innan tímamarka núna. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar svar. Ég heyri á þingmanninum að við erum sammála. Við erum sammála um það að okkur finnst eðlilegt að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins komi fyrir þingið til umfjöllunar þar sem hann er hluti af samgönguáætlun, það sé eðlilegt að þingið fjalli almennilega um þetta vegna þess að þarna er verið að ausa út fjármunum sem eru ekki fjármagnaðir, sem er líka mjög furðulegt.
Varðandi innviðafélagið sem þingmaðurinn kom inn á í sínu svari þá deili ég þeim áhyggjum með þingmanninum að innviðafélagið fái mögulega ekki fullnægjandi þinglega meðferð og ég er þeirrar skoðunar að það hefði verið eðlilegt að þingið hefði tekið til umfjöllunar náttúrlega fyrst fjármálaáætlun, síðan innviðafélagið og síðan samgönguáætlun vegna þess að þetta er allt hluti af sama menginu. Mig langar að spyrja þingmanninn, þar sem hún er landsbyggðarþingmaður eins og ég: Telur hún raunhæft að ýmis verkefni sem eru væntanlega ekki arðbær á landsbyggðinni, við skulum nefna bara göngin á Vestfjörðum sem stendur til að gera eða Fljótagöng, gætu farið inn í innviðafélagið? Og telur þingmaðurinn ekki hættu á því að t.d. göng á Vestfjörðum fari bara frekar aftarlega vegna þess að þau eru væntanlega ekki arðbær?