samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu og vil kannski taka boltann aðeins frá því í fyrra andsvari. Ég held að í sjálfu sér þurfi þingið kannski ekki að ræða einstaka hringtorg í Reykjavík en það er þessi heildarmynd og þessi fjárútlát og þessi tenging við landsbyggðina sem skiptir svo miklu máli. Ég held að fjármögnunin á þessu öllu saman og heildarsamhengið sé lykilatriði.
Varðandi innviðafélagið og göng sem ekki eru arðbær þá liggur alveg ljóst fyrir að til þess að slík göng komi til framkvæmda eins og hugsunin er, eins og ég skil hana, með innviðafélagi, þá þarf að setja á fót sérstakt dótturfélag. Það dótturfélag þarf meðgjöf frá ríkinu og sú meðgjöf þarf að birtast einhvers staðar. Hún þarf að birtast í samgönguáætlun eða birtast a.m.k. í fjármálaáætlun á fyrsta tímabili samgönguáætlunar. Sé ætlun ríkisstjórnarinnar að fara í eitthvað annað en Fljótagöng þá verður það að birtast í fjármálaáætlun. Það liggur ljóst fyrir. Þess vegna held ég að það sé svo ótrúlega mikilvægt að við séum skýrari. Það verður líka að vera jarðgangaáætlun og hún verður að vera fyrir verkefni sem eru óarðbær og hún verður líka að vera tímasett og hún verður líka að vera í fjármálaáætlun því annars eru öll önnur byggðarlög í lausu lofti með það hvað verður næst. Og er til fjármagn? Þó að það sé bjartsýni um að færa eitthvað yfir í innviðafélagið og þá muni skapast rými þá þarf líka að vera tímasett áætlun um hvernig eigi að nýta það rými í aðrar framkvæmdir, fyrir sumum er gerð grein fyrir í nefndarálitinu, en líka þessar risastóru framkvæmdir sem ólík sveitarfélög bíða sannarlega eftir.