samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hún byrjaði nú aðeins á að fjalla um Grindavík og þá stöðu sem uppi er þar eftir að Þórkatla breytti reglum er varða það að fólk geti aðeins dvalið 12 daga í mánuði í húsinu sínu. Ég tók þetta mál upp undir störfum þingsins í morgun og hélt ræðu um það og var að hvetja hæstv. ríkisstjórn til að koma með þessi mál hingað inn í þingið og ná breiðri pólitískri sátt um uppbyggingu Grindavíkur, fyrir utan það að nú er nýbúið að kjósa nýja bæjarstjórn í Grindavík, við liðkuðum fyrir því með breytingum á kosningalögum, og þá er auðvitað eðlilegt að við treystum þeim kjörnu fulltrúum sem þar eru varðandi uppbygginguna. Mig langaði bara að nefna þetta hér því að það er kórrétt það sem hv. þingmaður nefndi um Grindavík. Það er mjög mikilvægt að við tökum þau mál upp.
Á Reykjanesinu almennt, af því að hv. þingmaður var nú líka að ræða það og samgöngumál á því svæði, þar erum við með alþjóðaflugvöllinn. Það skapast alltaf reglulega umræða um það: Er kominn tími á lest til Keflavíkur? Ég held að það sé enn þá aðeins í það. Ég hef séð draumóramenn sem höfðu þessar hugmyndir og kynntu þær á sínum tíma. Kannski er hægt að fara með slíkt í gegnum einhvers konar innviðafélag. En mig langaði að spyrja hv. þingmann: Hefur hv. þingmaður skoðað eitthvað almenningssamgöngur og gildi almenningssamgangna út á Keflavíkurflugvöll? Það hefur töluvert verið gagnrýnt að það sé mjög erfitt að komast þangað með strætó og strætóferðirnar séu ekki hugsaðar í rauninni fyrir farþega frá Keflavík og þar eru aðilar sem selja rútuferðirnar. Hefur hv. þingmaður skoðun á því hvernig þessu væri best komið fyrir til framtíðar?