samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og ég vil byrja á að grípa boltann með Grindavík. Eins og hv. þingmaður talar um er komin ný sveitarstjórn og það er uppbyggingarfasi vonandi fram undan. Það er enginn að gera lítið úr öryggissjónarmiðum en það er einhvern veginn þannig að þeir sem augljóslega vildu halda í sínar eignir, af því að þeir vildu hafa þann möguleika að geta snúið aftur, eru í raun og veru þeir einstaklingar, þær fjölskyldur, sem eru að lenda í mestu fjötrunum. Aðrir sem þurftu kannski ekki að nýta slíkt úrræði eða voru með einhvers konar annað fyrirkomulag eru ekki að lenda í þessari hálfgerðu gildru sem manni sýnist vera að skapast þarna. Ég tek undir hversu mikilvægt það væri að eiga umræðuna til að reyna að finna einhverjar lausnir sem geta raunverulega gengið.
Varðandi almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar þá tek ég heils hugar undir að þær þurfa að vera betri. Það er settur ákveðinn peningur í almenningssamgöngur heilt yfir landið sem á að þjóna landsbyggðinni en það er engan veginn nóg til að tryggja slíkar mikilvægar stofnæðar eins og við erum að tala um til Keflavíkurflugvallar. Hv. þingmaður nefndi hérna draumóra um lest. Ég segi: Byrjum á því að klára tvöföldun Reykjanesbrautar, byrjum á því. Lykilvegur fyrir okkur. En hugsum líka um það að við vitum ekki nákvæmlega — við erum alltaf að miða við eitthvert arðsemisskjal í dag. Hugsum til þess að þegar ár voru brúaðar í Öræfunum, sem er í kringum 1970, þá var bara landbúnaður á svæðinu. Hugsum um það hvernig þær brýr í dag eru að þjóna einum af mikilvægustu ferðamannastöðum landsins (Forseti hringir.) og þarna eru vöruflutningar tengdir sjávarútvegi. Það myndi enginn efast (Forseti hringir.) um mikilvægi eða arðsemi þessara innviða í dag. Við þurfum líka að þora að hugsa langt fram í tímann.