157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:04]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar að staldra við það sem skrifað er í nefndaráliti varðandi almenningssamgöngurnar og umræðurnar sem hafa verið um þær um land allt. Þá langar mig reyndar að ítreka þá afstöðu mína að mér fundust það mistök að afgreiða hér einhvers konar þingsályktun um borgarsvæði þar sem verið var að tala um höfuðborgarsvæðið frá Hvítá til Hvítár. Þá eru almenningssamgöngur á þessu svæði allar teknar saman. Ég vil bara ítreka að það er rosalega mikill munur á kröfum sem gerðar eru til almenningssamgangna á þéttbýlu svæði og þegar verið er að tala um keyrslu á milli þéttbýlla svæða í dreifbýli. Það er bara allt annar handleggur. Ég óttast það mjög eins og þau sveitarfélög sem gert hafa athugasemdir við það fjármagn sem verið er að setja í almenningssamgöngur milli þéttbýlisstaða, það er langt frá því að vera nóg. Það mun aldrei duga í samræmi við þær kröfur sem settar eru. Þess vegna held ég að það væri nauðsynlegt að finna hagkvæmari og betri leiðir til að sinna almenningssamgöngum um landið og þá á ég við í þessu tilfelli almenningssamgöngur með rútum eða strætó. En það breytir ekki þeirri staðreynd að það er þörf á allt öðruvísi almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu sem er auðvitað hugsað í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem almenningssamgöngur þurfa að vera mjög tíðar og á sérakreinum eins og gert er ráð fyrir þar. Þá kemur kannski aftur að tengingunni við flugvöllinn því að ég veit að á sínum tíma voru margir að tala um þessa svokölluðu borgarlínu sem lest. Það er eitt af því sem við Sjálfstæðismenn á höfuðborgarsvæðinu stoppuðum og sögðum: Heyrðu, nei, við erum ekki nógu fjölmenn til þess. Í einhverjum útreikningum var það þó nefnt að Keflavíkurflugvöllur eða færsla Reykjavíkurflugvallar í Hvassahraun, sem ég held að sé ólíkleg sviðsmynd, gæti haft mikil áhrif á það þannig að mögulega einhvern tímann í framtíðinni gæti umferð um völlinn verið það mikil að það gæti ýtt undir lest eða sporvagna í gegnum almenningssamgöngukerfi. (Forseti hringir.) Og þeim mun áhugaverðari verður kannski pælingin ef einkaaðilar vilja fara í það að leggja lest frá Keflavík (Forseti hringir.) og kannski til Hafnarfjarðar þar sem svo aðrar almenningssamgöngur tækju við í formi borgarlínu.