samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ótrúlega áhugaverðar spurningar. Ég byrja kannski á að segja, eins og ég var að nefna og hljómar kannski dálítið fornaldarlegt, að þegar við erum að byggja innviði þá vitum við sjaldnast eða við vitum ekki nákvæmlega hvernig framtíðin mun þróast, alveg eins og bændurna sem voru einangraðir í Öræfum grunaði ekki að það myndu hundruð manna heimsækja svæðið vegna ferðaþjónustu eða að tengingin í gegnum þeirra svæði með flutning á fiski yrði lykilmál. Umferðartölur sem Vegagerðin í kringum 1970 var að miða við — það hefði enginn á þeim tíma sett þær í samhengi við tölurnar sem eru raunverulega í gildi í dag. Það má nefna tengingu á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Það er svo oft að við byggjum innviðina og þá gerast töfrarnir.
Ég held að það væri spennandi. Ég held að við eigum að byrja á að tvöfalda Reykjanesbrautina, keyra það verkefni, ég vil fá það framar, en ég held að aðkoma einkaaðila að verkefni sem fæli í sér einhvers konar lest eða annað sé mjög spennandi framtíðarmúsík, mjög spennandi, og kannski ekkert svo langt inn í framtíðina.
Varðandi almenningssamgöngur almennt þá tek ég undir að þetta er afar vanfjármagnaður liður heilt yfir. Það er hægt að fara í ólíkar lausnir. Þegar við erum að hugsa um t.d. sameiningar sveitarfélaga, er ekki grundvallarkrafa að það séu alvörutengingar, almenningssamgangnatengingar, á milli byggðakjarna sem kannski tilheyra ólíkum sveitarfélögum sem er verið að sameina? Þar er kannski hægt að komast af með lægri olíukostnað eða bensínkostnað með hagkvæmari leiðum tengdum orkuskiptum, rafbílum eða öðru, á meðan við verðum líka að horfa á almenningssamgöngur (Forseti hringir.) milli ólíkra landsvæða, alveg eins og þegar við vorum með (Forseti hringir.) Austurleið, Norðurleið og allar þessar rútur sem fluttu líka ferðamenn, en við höfum einhvern veginn gleymt í dag.