157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:09]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég ætla að halda áfram hringferð minni um landið og ætla núna að líta til með Ströndum og fara síðan á Norðurland vestra í framhaldinu. Ég kom aðeins inn á tvo vegi, vegkafla sem eru undir vestursvæði samgönguáætlunar í síðustu ræðu minni. Þetta eru tveir vegir sem eru með tilgreinda fjárveitingu í áætluninni eins og hún liggur fyrir. Það er annars vegar Innstrandavegur, sem er kallaður Heydalsá – Þorpar. Það var áætluð fjárveiting í þessa framkvæmd árið 2028. Nú er hún færð til ársins 2030. En mig langaði bara að rifja upp að það var í júní, 8. júní, sýndist mér á minnispunktunum, 2020 sem þingmenn Norðvesturkjördæmis settust saman á fundi. Þetta er gildandi samgönguáætlun, það hefur ekki verið samþykkt áætlun síðan þarna í lok júní 2020, en 8. júní 2020 settust þingmenn Norðvesturkjördæmis saman og ákváðu að hafa leggja sameiginlega áherslu á það að þessi vegur fengi fjárveitingu þannig að þessi 5 km kafli yrði kláraður og lagður bundnu slitlagi. Enn er þetta að frestast, svona varðandi væntingastjórnun sem ég hef rætt bæði í andsvörum og ræðum á fyrri stigum, væntingastjórnun í tengslum við samgönguáætlun og framkvæmdir sem áætlaðar eru.

Hinn vegurinn sem mig langar að ræða hér í tengslum við Strandir er vegurinn um Veiðileysuháls sem er náttúrlega einhver þrautaganga og er þyngra en tárum taki með hvaða hætti væntingastjórnun hefur verið klúðrað gagnvart þeim íbúum sem þar búa og þeim sem það svæði sækja heim. Það byrjar árið 2008, ef ég man rétt, þá eru fyrstu fjárveitingar áætlaðar á samgönguáætlun til að fara af stað með framkvæmdina og síðan átti að koma aftur fjárveiting 2009 og átti að vinna úr því. Við erum hér 2026. Börn sem fæddust eftir þennan tíma eru komin með bílpróf. Síðan kom aftur loforð í samgönguáætlun um að það yrðu fjárveitingar á árunum 2015–2018, þá var gert ráð fyrir 700 milljónum til að laga Veiðileysuhálsinn árið 2016. Það eru tíu ár síðan það var. Enn hefur ekkert gerst. Nú er lögð fram samgönguáætlun þar sem er áætlað að það verði settir peningar í lagfæringu á Veiðileysuhálsi á Ströndum á öðru áætlunartímabili þessarar samgönguáætlunar, sem sagt á tímabilinu 2031–2035. Að fenginni reynslu verður að reikna með því að þessi fjárveiting verði í lífshættu hvern einasta dag fram að þeim tíma að eitthvað fer af stað á svæðinu.

Það er auðvitað alveg gríðarlega mikið álag fyrir svæði að finna sig í þeirri stöðu að það er sveiflað gulrót fyrir framan íbúa á svæðinu um að nú sé þetta alveg að koma, svo er hún alltaf færð lengra og lengra fram í tímann , eða eins og Eva Sigurbjörnsdóttir, þáverandi oddviti Árneshrepps, sagði í viðtali við Kristján Má Unnarsson á Stöð 2 í nóvember árið 2018, með leyfi forseta:

„Þetta er sko blaut tuska í andlitið á öllu þessu fólki. Alltaf erum við að vona. Við misstum frá okkur unga fólkið í stórum stíl árið 2016, bara út af samgöngunum. Það er alveg pottþétt.“

Þetta hefur áhrif. Þess vegna vil ég hvetja hæstv. innviðaráðherra til að fara varlega í því að gefa væntingar og loforð sem eru í raun ekki áform uppi um að standa við. En það sem hjálpar nú og verður sérstakur hvati til að komast í þessa framkvæmd eru auðvitað áform um virkjun Hvalár. Það verður sérstakur hvati til þess að þessi framkvæmd komist loksins á koppinn því það er auðvitað þannig að umferð og flutningar um svæðið munu aukast til muna frá því sem verið hefur. Þannig að ég bara vona að það sé hægt að segja við íbúa í Árneshreppi að núna loksins, verði þessi samgönguáætlun samþykkt á þessu vorþingi, í öllu falli samþykkt í haust, verði staðið við það að klára það loforð sem íbúum á svæðinu var veitt fyrir mjög löngu síðan. Ég man hreinlega ekki eftir öðrum vegi, öðrum kafla, nema ef vera skyldi Sundabrautinni, en það er annars eðlis, sem hefur átt erfiðara uppdráttar þegar tímalína samgönguáætlunar (Forseti hringir.) hefur liðið jafnt og þétt eins og við þekkjum, alltaf fellur Veiðileysuháls öfugum megin hryggjar. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Ég á aðeins eftir af hringferð minni og bið um að verða settur aftur á mælendaskrá.