samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég gæti ekki verið meira sammála hv. þm. Bergþóri Ólasyni sem ræddi m.a. um Árneshreppinn áðan sem hefði verið svikinn til langs tíma, allt of lengi, um vegabætur. Ég er búin að vekja athygli á hversu bagalegt þetta er í alla vega nokkrum ræðum tengdum framlagningu samgönguáætlunar. Það er þyngra en tárum taki að loforð skuli vera svikin æ ofan í æ. Það er ekki einu sinni verið að biðja um einhverja brjálæðislega góða vegi. Það er bara verið að biðja um bara að vegirnir verði lagfærðir, holufylltir og heflaðir og borið ofan í þá þannig að þeir séu ekki hættulegir. Staðan er þannig, og maður hefur heyrt af því, að hóteleigendur þurfi að veita gestum, ferðamönnum, áfallahjálp eftir að hafa ekið þessa vegi. Þetta er náttúrlega ekki boðlegt og það verður að finna fjármagn til að standa við þessi loforð. Það er nóg komið af þessu.
En í þessu innleggi mínu ætlaði ég að ræða ferjurnar og ferjuleiðirnar. Mér sýnist ég ekki geta farið almennilega yfir þetta á þessum stutta tíma sem ég hef í þessari ræðu. Ferjur og ferjusiglingar eru náttúrlega órjúfanlegur hluti samgöngukerfisins á nokkrum svæðum landsins. Við getum nefnt Vestmannaeyjar sem dæmi. Við höfum öll heyrt á hvers konar skelfingarástand hefur skapast núna ítrekað á því svæði. Það hefur nánast verið bara samgöngulaust, alla vega endrum og eins, sem er ekki gott. En þetta er ekki eina samgönguæðin þar sem ferjusiglingar skipta máli. Við getum t.d. nefnt Baldur. Hann gegnir lykilhlutverki hvað samgöngur varðar á Vestfjörðum og á milli Vestfjarða og Vesturlands og er lífæð Flateyjar á Breiðafirði og annarra eyja þar. Ég er mjög ánægð með það sem birtist í nefndaráliti meiri hlutans þar sem hvatt er til þess að það verði unnin ferjuáætlun sem hafi að geyma skýra framkvæmdaáætlun um endurnýjun ferjuflotans. Þetta er alveg ofboðslega brýnt vegna þess að þegar maður les sér til varðandi þennan ferjuflota sem við höfum þá eru ferjurnar sennilega velflestar komnar til ára sinna og þarf að endurnýja. Og eins og staðan er í dag, eins og við þekkjum til, t.d. varðandi samgöngur á milli lands og Eyja, þá hefur ítrekað þurft að taka Baldur úr þjónustu á Breiðafirði til að létta þar undir og þá sérstaklega þegar ekki er hægt að dýpka höfnina eða þegar Herjólfur bilar og þar fram eftir götunum. Hvað það varðar er hins vegar ný staða uppi vegna þess, og ég mun þurfa að koma í aðra ræðu til að fara almennilega yfir það, að það á að taka Baldur úr siglingu yfir Breiðafjörð, ekki út af því að Herjólfur er bilaður. Ég veit að hann er að sigla á annarri skrúfunni en hann gengur þó. Það er verið að taka Baldur úr þjónustu á Breiðafirði til að anna eftirspurn á öðru svæði. Það er verið að senda hann í þjónustu á milli lands og Eyja út af því að það þarf að ferja bíla, það þarf að ferja fólk. Það er ekki út af því að það sé einhver bilun. Á meðan er þjónusturof milli Vesturlands og Vestfjarða vegna þess að ferjan sem mun leysa Baldur af er miklu afkastaminni. Hún siglir ekki frá Stykkishólmi til Brjánslækjar. Hún fer eingöngu til Flateyjar þannig að þarna er þjónusturof. Þetta er gríðarlega alvarlegt og er að skapa mikil vandræði á svæðinu.
Ég ætla að fá að fara yfir þetta betur í næstu ræðu og óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.