157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:21]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Við erum hér að ræða mikilvægt mál og við ræðum hér um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030.

Virðulegi forseti. Ég hef haldið eina ræðu í þessu máli og fór þá svona kannski vítt og breitt yfir nefndarálitið og almennt um þetta mál. En mig langar núna til að horfa aðeins til þess að skoða hér almenningssamgöngur og vil ég þar sérstaklega nefna ferjur sem hafa talsvert verið í umræðunni núna um nokkurt skeið. Þegar kemur að almenningssamgöngukerfinu þá hefur það auðvitað verið aðeins brothætt, svo maður hreinlega segi það. Þar er ég að ræða í rauninni ferjusiglingarnar sem eru partur af almenningssamgöngunum. Mig langar til að nefna sérstaklega þær aðstæður sem hafa verið uppi í Vestmannaeyjum en þar hefur núna í vetur meira og minna verið ófært í Landeyjahöfn og því orðið að sigla í Þorlákshöfn með því óhagræði sem því fylgir. Síðan hefur staðan verið þannig að Herjólfur hefur verið nokkuð bilanagjarn og því hafa ferðir til Eyja verið mjög stopular hvað varðar ferjusiglingar. Þetta er óásættanlegt. Við í Sjálfstæðisflokknum heimsóttum Vestmannaeyinga núna á vormánuðunum til að ræða þessi mál á fundum hjá þeim og ræða þar við fyrirtæki og almenning. Það var eiginlega sorglegt að sjá hversu gríðarleg áhrif þetta hafði, ég ætla að leyfa mér að segja sérstaklega á ferðaþjónustuna, í Vestmannaeyjum. Maður áttaði sig á því hversu mikilvægar þessar samgöngur eru fyrir Eyjar og þetta er auðvitað brothætt eins og sést. Því vil ég leyfa mér að segja að við þurfum að setja það í algjöran forgang að leysa úr þeim málum sem þar eru broguð. Þar horfir maður til þessarar lausnar sem mögulega er við sandfang Landeyjahafnar og er óskandi að það gangi eftir og að það verði farið í það hratt og örugglega og einnig að þær lausnir sem þar eru í boði virki. Það hefur líka verið einn hængur á því þegar samgöngur til Vestmannaeyja hafa ekki gengið eftir, t.d. vegna bilunar á Herjólfi, þá hefur Vegagerðin notað Breiðafjarðarferjuna Baldur til þess að leysa Herjólf af og það hefur verið gert með, ég ætla að leyfa mér að segja, ótrúlega skömmum fyrirvara.

Svo maður segi það hefur upplýsingagjöf Vegagerðarinnar til þeirra sem eru að nýta þessa þjónustu því miður ekki verið nægilega góð. Ég vil leyfa mér að segja að hún hefur meira að segja verið langt frá því að vera góð. Það má eiginlega segja að skipið hafi hreinlega verið tekið í skjóli nætur í einhver skipti. Það hefur í för með sér veruleg óþægindi fyrir þá sem eru að nýta þessa ferju. Þar vil ég nefna þá sem t.d. hafa verið í þungaflutningum og ákveðið að nýta t.d. ferjuna þegar þungatakmarkanir hafa verið á vegum og ljóst er að þeim verður erfiðara um vik. Auðvitað þjónustar Breiðafjarðarferjan Baldur Flatey og er í rauninni einu samgöngurnar þangað. Ef þetta skip er ekki í þeirri þjónustu þá fellur sú þjónusta niður. Reyndar hafa menn verið að nota töluvert minna skip, Særúnu, sem hefur leyst úr bráðasta vandanum en það er ekki ákjósanlegt.

Ég vil nefna í þessu sambandi að ef við horfum til Flateyjar er líka um að ræða rof í ferðaþjónustu. Ég verð að lýsa mig sammála bæjarstjóra Vesturbyggðar þegar hún skrifaði nýlega á samfélagsmiðla um hvað það hefur í för með sér að grípa Baldur svona úr þessari þjónustu og, með leyfi forseta, þá langar mig til að fara aðeins yfir frásögn hennar af því:

„Nú hefur verið ákveðið að taka Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð í þriðja sinn á skömmum tíma. Að þessu sinni er gert ráð fyrir að skipið verði frá siglingum í allt að þrjár vikur. Í fréttatilkynningu á vef innviðaráðuneytisins er þetta orðað svo: „Vegna mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni var talið nauðsynlegt að varaskipið Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja á þessu tímabili.“ Hvergi er hins vegar minnst á að Baldur sinnir öllu jafna ferjusiglingum yfir Breiðafjörð og það mikla óhagræði sem þessi ákvörðun veldur íbúum, fyrirtækjum og gestum svæðisins.“

Ég ætla að leyfa mér að segja að þetta lýsi eiginlega ótrúlegum aðstæðum sem þarna eru uppi og að það skuli vera þannig að ferjan sé nánast tekin í skjóli nætur er ótrúlegt.

„Rétt er að benda á að yfir sumarmánuðina siglir Baldur á markaðslegum forsendum og nýtur ekki greiðslna frá Vegagerðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Ferjuleiðum, sem reka Baldur, var bókunarstaða skipsins mjög góð.“ Þannig að þetta hefur efnahagsleg áhrif fyrir þennan rekstraraðila.

„Ákvörðun sem þessi hefur gríðarleg áhrif á svæðið allt. Ferðamannatímabilið á Vestfjörðum er stutt og ferðaþjónustan því sérstaklega viðkvæm. Margir aðilar treysta á reglulegar siglingar Baldurs, bæði til fólks- og vöruflutninga.“ — og því er þetta miður.

Þá nefnir bæjarstjórinn einnig, með leyfi forseta: „Þá vinnur Orkubú Vestfjarða að umfangsmiklu orkuskiptaverkefni í Flatey. Flutningar á búnaði og framkvæmdum eru háðir áreiðanlegum siglingum yfir Breiðafjörð og því hefur röskun á siglingum Baldurs bein áhrif á framgang verkefnisins og getur valdið verulegum töfum.“

„Hér hafa aðeins verið nefnd örfá dæmi um áhrif þessarar ákvörðunar, en þau sýna glögglega hversu víðtækar afleiðingarnar eru fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti í Stykkishólmi, Flatey og á Vestfjörðum, sem og þá fjölmörgu sem þegar höfðu bókað far með skipinu.“

Hvað er til ráða? Jú, það er til ráða að hafa tilbúið sérstakt varaskip til að grípa inn í við ferjusiglingar sem er þá betur búið en það skip sem leysir t.d. Baldur af hólmi. Það er mikilvægt að horft sé til þess að slíkt skip hafi haffæri og að hægt sé að nota það með tiltölulega skömmum fyrirvara.

Svo er einnig rétt að geta þess að ef við horfum til ferjukosta á Íslandi eru ferjuleiðirnar ekki margar. Það eru ferjur milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar, Hríseyjar og Árskógsstrandar, Grímseyjar og Dalvíkur og Stykkishólms að Brjánslæk. Þarna eru ferjur sem eru, ég ætla að leyfa mér að segja, komnar nokkuð til ára sinna og mikilvægt er að hugað sé að því að það þurfi að taka ákvarðanir um að byggja ný skip. Það er mikilvægt að það sé fyrirsjáanleiki í því þannig að við séum ekki með of gömul skip sem þarfnast kannski aukins viðhalds og það sé þá að einhverju leyti hægt að flytja jafnvel ferjur á milli með því að eiga þá eitt varaskip.

Ég hef nú aðeins tæpt á þessu sem snýr að almenningssamgöngum og varðar skip og ferjur og ætla að segja þetta gott að sinni. Ég vil biðja hæstv. forseta að skrá mig aftur í ræðu en mig langar til að segja meira hér.