157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:31]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er erfitt að ræða samgönguáætlun án þess að ræða innviðafélagið. Hv. þm. Ólafur Adolfsson fór vel yfir ýmsar samgönguframkvæmdir en nú liggur hins vegar fyrir að í samgönguáætlun er áætlað að gera mjög margt. Það byggir allt á því að innviðafélagið geri x mikið, en nú hefur komið í ljós að þetta innviðafélag virðist vera algert ríki í ríkinu og í nafni þess að það eigi að vera svo sjálfstætt þá á að taka ákvörðunarvaldið frá kjörnum fulltrúum og þar með fólkinu í landinu um hvaða forgangsröðun á að fara í. Ef innviðafélaginu þóknast ekki að fara í það sem ríkisstjórnin setur fremst á dagskrá, þá verður ekki farið í þau verkefni. Innviðafélagið starfar algerlega á markaðsforsendum. Ef um er að ræða tvö arðbær verkefni, til að mynda Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga, þá mun innviðafélagið að öllum líkindum velja tvöföldun Hvalfjarðarganga. Gott og vel að félagið velji það, en finnst hv. þingmanni ekki eitthvað öfugsnúið að það séu bara andlitslausir embættismenn, ef ég leyfi mér að segja svo, sem eru farnir að taka ákvörðun um forgangsröðun samgöngumannvirkja á Íslandi? Ég leyfi mér að fullyrða miðað við önnur ohf. að lögin eru ekki þannig að Alþingi Íslendinga geti ekki sagt: Innviðafélagið má fara í þessi verkefni og í þessari röð, þetta er kvöð frá Alþingi. Svo þegar innviðafélagið tekur framkvæmdina yfir til sín þá er það algjörlega á forsendum þess hvernig hún er unnin áfram.

Er hv. þingmaðurinn sammála því að það sé afleitt að valdið sé tekið algerlega frá Alþingi Íslendinga og þar með landsmönnum?