samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skil samgönguáætlun og samspil hennar við hið svokallaða innviðafélag með þeim hætti að í samgönguáætlun séu merktir þeir kostir sem gætu verið álitlegir og fallið undir það að standast markaðspróf hjá hinu svokallaða innviðafélagi og, alla vega miðað við þá kynningu sem ég hef fengið á innviðafélaginu, þá sé það sjálfstætt félag, C-hluta félag sem í rauninni lúti ekki öðru en þeirri stjórn sem þar er og ríkið geti t.d. ekki haft nein afskipti af því eða pólitíkin. Það geta auðvitað verið bæði kostir og gallar í því. En eins og ég skil þetta þá er verið að merkja þær framkvæmdir sem mögulega geta fallið undir innviðafélagið og síðan sé það ákvörðun, sjálfstæð ákvörðun innviðafélagsins á hverjum tíma hver forgangsröðun ganga verður. Nú eru þetta yfirleitt og væntanlega allt arðsamar framkvæmdir eða mannvirki sem við erum þá að fela félaginu að velja og reisa. Það má kannski segja að af því að þetta er gert á eigin forsendum þá séum við ekki að leggja fé til þessara framkvæmda heldur sé þess aflað með öðrum hætti. Við getum þá í raun nýtt aðra fjármuni í uppbyggingu á mannvirkjum, umferðarmannvirkjum og öðru er varðar samgönguáætlun á öðrum svæðum heldur en akkúrat þar sem um er að ræða framkvæmd sem innviðafélagið fer í.
Varðandi það að verið sé að fara í framkvæmdir sem gætu mögulega skipt máli varðandi forgangsröðun þá ætla ég að leyfa mér að segja að það verður alfarið á hendi félagsins að ákveða þetta og (Forseti hringir.) væntanlega mun það ráða hvað er skynsamlegast að gera í fjárhagslegu tilliti og byggist líka á áhuga þeirra sem munu síðan fjárfesta í viðkomandi framkvæmd.