157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:35]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni svarið og ég held að við séum nokkurn veginn sammála, alla vega ef ég skildi hann rétt í ræðu sinni, að innviðafélagið gæti orðið mikið heillaspor fyrir Íslendinga. Gott innviðafélag gæti flýtt framkvæmdum og margir kostir við það. Hins vegar er það alveg á hreinu að ef innviðafélagið á ekkert að fara eftir því hvað er þjóðhagslega hagkvæmt heldur bara peningalega hagkvæmt fyrir innviðafélagið, sem maður skilur alveg út af fyrir sig, þá getur verið að mjög þjóðhagslega hagkvæm verkefni verði ekki að veruleika, kannski þau verkefni sem eru hvað mest þjóðhagslega hagkvæm. Aftur tek ég dæmi um Sundabraut. Þannig að ef þetta er raunveruleikinn, eins og mér sýnist vera, þá væri betra að mínu mati að við myndum fara í það sama og Hvalfjarðargöngin, svona BOT-fyrirkomulag þar sem einhver kemur og byggir og sér um gjaldtökuna, sem sagt innheimtir, og skilar svo félaginu til baka til ríkisins eftir x mörg ár. Þannig að ég hugsa: Ókei, ef innviðafélagið tekur slíkt ekki þá getur ríkið farið í svona framkvæmd. En því var haldið fram hér í þingsal og ég er búin að reyna að komast að því hvort að það sé rétt að ef við stofnum innviðafélag þá erum við jafnframt að segja að innviðafélagið fái öll verkefnin og við séum ekki að fara í svona. Er þetta eitthvað sem hv. þingmaður veit hvort sé rétt? Og ef hann veit það ekki, væri ekki afleitt ef við settum okkur í þá stöðu að við gætum ekki farið í þær samgönguframkvæmdir sem eru þjóðhagslega hagkvæmastar og valið þær sjálf?