157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég hef skilið það þannig að það sé í raun ekkert sem banni ríkinu eða Alþingi, ef það er undir, að velja framkvæmdir eða mannvirki sem við viljum að rísi á grundvelli samgönguáætlunar. Ef við teljum að það þjóni betur hag Íslands að einhver mannvirki, umferðarmannvirki, rísi sem fyrst þá er það auðvitað á valdi Alþingis að leggja fram fé í slíka framkvæmd. Innviðafélagið er auðvitað hugsað þannig að það sé algjörlega á markaðslegum forsendum og án þess að ég ætli að úttala mig sem einhvern sérfræðing í innviðafélögum þá liggur það í hlutarins eðli að það er stjórnar viðkomandi félags að ákveða þá kosti sem ákveðið er að reisa hverju sinni og ég held að það fari reyndar alveg ágætlega á því.

Það sem mér hefur kannski gengið erfiðlegast að svona setja saman í huganum er — af því að við þekkjum öll Hvalfjarðargangamódelið og það var alveg vitað út á hvað það gekk. Það gekk út á að það var stofnað félag sem hafði ákveðið hlutafé og síðan voru fengnir aðilar, fjárfestar, til að leggja fé í þessa framkvæmd og það var alveg skýrt í uppbyggingu á því verkefni að þegar framkvæmd lyki og hún væri að fulslu greidd þá myndi samgöngumannvirkið renna til íslensku þjóðarinnar og fara til Vegagerðarinnar. Varðandi innviðafélagið hins vegar er ekki alveg ljóst í mínum huga hvernig því verður háttað. Ég held að það sé þannig í rauninni að félagið haldi áfram að reka viðkomandi umferðarmannvirki að einhverju leyti og innheimta gjöld. En ég á alveg eftir að sjá á spilin með það hvort þau gjöld muni taka breytingum þegar mannvirkið er að fullu greitt og ef við setjum t.d. einhver arðsemismörk á slíkt umferðarmannvirki, hvort það breytist þegar búið er að greiða upp mannvirkið. Það er t.d. ekki hægt að reikna með því að það sé verið að gera annað heldur en að þjónusta göngin eða vera með viðhald o.s.frv. og rekstur þeirra. En ég sé ekki fyrir mér t.d. að það sé „premía“ lögð á til að standa undir fjármagnskostnaði.