157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla að einbeita mér að innviðafélaginu í þessari ræðu vegna þess að það verður ekki slitið í sundur, þessi samgönguáætlun og innviðafélagið. Samgönguáætlun er sögð fullfjármögnuð. Það er rangt því að það er augljóst að innviðafélag sem hefur ekki verið stofnað er ekki fjármagnað en fullt af framkvæmdum í samgönguáætlun á að fara í gegnum innviðafélag — það segir sig sjálft að samgönguáætlun er ekki fjármögnuð. Innviðafélagið á algerlega að ráða eða hafa til hliðsjónar samgönguáætlun til að velja hvaða verkefni það tekur. Tökum dæmi. Það kemur fram í samgönguáætlun að áætlað er að hringvegur um Kjalarnes kosti 6,3 milljarða. Jafnframt er tekið fram að ef hins vegar innviðafélagið sé tilbúið að taka þá framkvæmd þá losni um 6,3 milljarða. Það er vel. Þá er það komið yfir til innviðafélagsins sem við þekkjum að mun afla fjár annars staðar, sem sagt fá fjárfesta að borðinu, hluthafa og mun rukka veggjöld. Hins vegar er ekki er talað um í samgönguáætlun: Hvað gerist ef til að mynda Setbergsgöng, göng undir Öxnadalsheiði, göng um Reynisfjall eða aðrar framkvæmdir sem er áætlað að innviðafélagið taki munu ekki fara inn í innviðafélagið, þ.e. ef innviðafélagið segir: Nei, takk, þetta getum við ekki gert á markaðsforsendum? Þá stendur eftir að annaðhvort mun innviðafélagið ekki fara í þær framkvæmdir eða að ríkissjóður þarf að koma með meðgjöf. Ef ríkissjóður þarf að koma með meðgjöf sem hann er ekki búinn að áætla að koma með þá vantar þá fjármuni. Þannig að aftur er það alveg augljóst að þessi samgönguáætlun er langt frá því að vera fjármögnuð.

Til að útskýra aðeins betur hvernig þetta virkar þá skulum við byrja aðeins á að ræða uppsetningu á innviðafélagi. Eins og ég hef sagt áður í þessum ræðustól þá tel ég að innviðafélag geti verið mikið heillaspor fyrir Ísland. Ég tel reyndar að það mætti gera meira en bara að vera innviðafélag utan um samgönguframkvæmdir, því að innviðafélög geta auðvitað verið með miklu meiri starfsemi, fjölbreyttari, og þá erum við auðvitað að leyfa einkaframtakinu að koma meira að. Það sem liggur hins vegar alveg fyrir eins og þetta er í dag er að innviðafélagið mun rukka veggjöld. Þess vegna getum við flýtt framkvæmdum. Veggjöldin eru viðbótarskattheimta. Það á ekki að draga úr neinu öðru, engu öðru. Þetta er viðbótarskattheimta á vinnandi fólk. Það liggur alveg fyrir. Þannig að eðlilegt væri að það væri dregið úr einhverju öðru samhliða því að fólk er að fara að borga meira fyrir notkun veganna beint. Svo er ekki hjá þessari skattastjórn. Samt erum við nýbúin að hækka skatta, eða þessi ríkisstjórn, um marga, marga milljarða, hátt í 30, og þeir sögðu að meira og minna allt ætti að fara í samgöngur. Svo sjáum við samgönguáætlun og hækkunin er augljóslega ekki það sem var búið að lofa. Og nú á innviðafélagið að redda því.

Innviðafélagið, sem ég tel að gæti verið gott, er því miður ekki nógu gott í núverandi útfærslu. Af hverju? Vegna þess að það er ekki breið sátt um félagið þar sem ríkið setur stefnuna um hvert skuli fara. Nei, það virðist vera rauður þráður í gegnum allt að það eigi að fjarlægja ríkið og kjörna fulltrúa eins langt frá allri ákvarðanatöku og hægt er. Þarna held ég að gæti einhvers misskilnings vegna þess að þegar fyrirtæki eins og innviðafélagið eiga að vera rekin undir C-hluta ríkissjóðs þá þurfa þau að vera sjálfstæð og algerlega á markaðsforsendum. Það breytir því samt ekki að ríkið, sem ætlar að eiga þetta, á að leggja línurnar um af hverju það ætli að eiga þetta félag. Af hverju ætlar ríkið að vera með innviðafélag? Hver er tilgangurinn fyrir fólkið í landinu? Það hlýtur að vera spurningin.

Við erum að þessu fyrir fólkið í landinu. Við erum ekki að þessu fyrir embættismennina sem vilja stækka báknið. Nei, við erum að þessu fyrir fólkið í landinu. Ef það væri svo að við mættum ekki ákveða hér á Alþingi Íslendinga hvaða framkvæmdir eru í forgangi þá þyrftum við að spyrja okkur: Er innviðafélag rétta leiðin? Væri þá betra að endurtaka leikinn og gera eins og við gerðum með Hvalfjarðargöngin og fara í svokallaða BOT-framkvæmd sem snýst um að byggja upp framkvæmdina? Það kemur inn þekking frá erlendum aðilum sem bjóða í verkið. Þeir byggja t.d. göngin, eins og með Hvalfjarðargöngin, reka þau í mörg ár og svo eftir ákveðið samkomulag fer framkvæmdin aftur til ríkisins, til okkar Íslendinga. Þarna ræður Alþingi Íslendinga algerlega hvernig forgangsröðunin er og farið er beint í verkefnin sem eru þjóðhagslega hagkvæmust hverju sinni eða sem er af einhverjum ástæðum búið að lofa kjósendum í þessu landi að fara í.

Hins vegar vil ég ekki alveg gefa upp vonir um innviðafélagið vegna þess að ég held að þeir sem eru búnir að búa til innviðafélagið séu á ákveðinn hátt að reyna að halda Alþingi viljandi frá. Það er ekki þannig að Alþingi Íslendinga geti ekki sett inn í samgönguáætlun röðun á þeim framkvæmdum sem það vill að innviðafélag fari í. Svo væri hægt að setja skilyrði að ef innviðafélagið tekur ekki fyrsta valkost, sem mögulega verður Sundabraut, tvöföldun á Hvalfjarðargöngunum væri annar kostur, þá þyrfti innviðafélagið að útskýra af hverju. Þarna erum við að tala um tvær framkvæmdir sem eru báðar hagkvæmar.

Við verðum að hafa þetta vald á Alþingi Íslendinga. Við getum ekki gefið það frá okkur að það séu kannski einhverjir nokkrir aðilar í innviðafélagi sem stýra röðun á framkvæmdum á Íslandi. Við verðum að geta valið þjóðhagslega hagkvæmustu framkvæmdirnar. Við verðum að geta valið það sem við ákváðum. Þó að það sé ekki þjóðhagslega hagkvæmt, þó að það séu óarðbær verkefni, þá verðum við að geta sagt: Þið megið taka þetta. Þið fáið hérna meðgjöf af því að þið þurfið að vera á markaðsforsendum. Gott og vel. En við erum að segja: Þið takið þetta og ef ekki þá verður ríkið að geta farið í annars konar útboð. Það má ekki vera búið að útiloka það á nokkurn hátt, eins og stendur til að gera með þessu félagi. Þetta finnast mér vera miklir lykilpunktar.

Það er alltaf verið að færa vald, sérstaklega þessi ríkisstjórn. Ég ætla aðeins að leyfa mér að segja að Viðreisn er mikið í mun að færa allt vald til embættismanna. Þau vilja einhvern veginn að kerfið taki yfir. Þetta er embættismannaflokkur og það er ekki nóg; þau vilja náttúrlega núna að við förum í embættismannakerfið í Brussel. Það er ekki nóg að vera stýrt af kerfinu hérna heima. Við sáum það þegar frumvörpin komu hérna að þetta voru allt frumvörp sem jafnvel fyrri ríkisstjórn vildi ekki leggja fram. Þá komu bara einhverjir embættismenn með tilbúið frumvarp og þau tóku það auðvitað bara. En núna er planið að gott innviðafrumvarp sé búið að kerfisvæða þetta. Það er búið að gera svona embættismannafrumvarp þannig að Viðreisn er nýbúin að fjarlægja allt vald frá kjörnum fulltrúum með því að fara í eitthvert leikrit sem maður skilur að sé hægt að stilla upp og láta líta vel út; kjörnir fulltrúar mega alls ekki tilnefna í stjórnir ríkisfyrirtækja, ekki út frá þeirra stefnu.

Það gleymist oft að segja að þó að flokkar séu að kjósa — það er hægt að setja hæfnisviðmið og það var gert í flestum fyrirtækjum. Núna hins vegar í þessu innviðafélagi virðist ríkisstjórnin aldeilis ætla að setja sitt fólk í stjórnir. Við eigum samt að trúa því að þetta sé óháð. Forsætisráðherra ætlar að velja einn stjórnarmann, fjármálaráðherra ætlar að velja tvo stjórnarmenn og innviðaráðherra ætlar að velja tvo stjórnarmenn. Þetta er allt hlutleysið. Og svo í hina röndina er okkur sagt: En alls ekki Alþingi Íslendinga. Auðvitað á þetta bara að vera þannig að það á bara, í hlutfalli við lýðræðið, í hlutfalli við kosningu, að kjósa í stjórn. Það eru auðvitað faglegar kröfur um stjórnarmenn að þeir séu til þess bærir að vera í stjórn þessa félags til að það verði sem hagstæðast. — En nú er ég að renna út á tíma, frú forseti, og ég er ekki alveg búin með innviðafélagið þannig að ég óska eftir að verða sett aftur á mælendaskrá.