157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:51]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég skil vel að áhugi hennar liggi á innviðafélaginu því að það er m.a. í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar vikið að því í nokkuð mörgum orðum. Ég vil segja að það sé áhugavert verkefni um margt. Ég hefði reyndar kosið að við hefðum fjallað um innviðafélagið áður en við tókum samgönguáætlun til umræðu. Það hefði kannski skýrt margt af því sem við höfum verið að ræða í þessum umræðum ef við hefðum haft fulla vitneskju og skilning á því hvað innviðafélagið á að gera og hvernig það á að búa til rými fyrir auknar framkvæmdir innan samgönguáætlunar og hvernig samspil þessara tveggja hluta er. Það er áhugavert að, eins og ég nefndi, í nefndarálitinu stendur, með leyfi forseta:

„Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvaða verkefni á samgönguáætlun færast til framkvæmda hjá innviðafélagi. Þó má vera ljóst að það getur gerst hratt þegar frumvarp til laga um félagið og samgönguáætlun hefur verið samþykkt á Alþingi. Af þeim fjölmörgu áskorunum og hvatningu til að flýta og bæta við verkefnum á samgönguáætlun sem Alþingi hefur fengið má vera ljóst að aukið svigrúm til að fjölga verkefnum á samgönguáætlun getur styrkt áherslur hennar og flýtt því að markmið náist.“

Ég ætla að leyfa mér að vera sammála þessu. En ég spyr hv. þingmann: Hefði ekki verið eðlilegra í væntingastjórnun að vera ekki mikið að ræða þá kosti sem væru í boði og í rauninni hvernig við ætluðum að raða þeim inn í samgönguáætlun? Er það ekki til þess fallið að búa til væntingar sem kannski er ekki möguleiki á að uppfylla?