157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:53]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætlaði að byrja á að vera algerlega sammála hv. þm. Ólafi Adolfssyni um að innviðafélagið hefði þurft að ræðast áður. Þetta er klárlega öfug röð á þessu. Gott og vel, fyrir vikið erum við eiginlega búin að ræða þetta svolítið samhliða. Og auðvitað er ég líka sammála því að það voru gefnar miklar væntingar um þessa samgönguáætlun og margir urðu fyrir vonbrigðum en þeir sem eru þar inni hafa fengið væntingar um að það verði farið í framkvæmdir. En núna liggur fyrir að þetta er bara einhver óskalisti, þetta er ekkert fjármagnað af ríkinu. Þetta er svona hugmynd fyrir innviðafélag, þetta sama innviðafélag sem má svo algerlega ráða sjálft hvaða forgangsröðun það velur. Ég er sammála því að ef innviðafélagið er á markaðslegum forsendum þá verður það auðvitað að vera í arðbærum verkefnum. En þarna er verið að gefa í skyn að það sé verið að fara í fullt af verkefnum, jafnvel óarðbærum verkefnum, án þess að tilgreina hvaðan peningarnir eiga að koma sem mótgjöf inn í innviðafélagið. Innviðafélagið getur alveg fengið aukið hlutafé eða meðgjöf frá ríkinu til þess að fara í óarðbær verkefni en um leið og það er algerlega frjálst að vali sínu, þetta innviðafélag, þá velur það auðvitað hröðustu og hagkvæmustu framkvæmdirnar til að byrja. Gott og vel. En það sem eftir stendur er spurningin: Hvað með hinar framkvæmdirnar? Við erum enn þá bara að upplifa einhvern óskalista þar og það eru ekki skýr svör um óarðbæru verkefnin. Þau eru mjög fá. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að fjármagna það sem fer ekki inn í innviðafélagið og er ekki í samgöngusáttmálanum og eru ekki peningar fyrir?