samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég vil nú segja gagnvart því síðasta sem hér var rætt að auðvitað er það þannig að ef það eru ekki peningar inn í samgönguáætlun þá verður væntanlega ekki farið í þau verk sem hv. þingmaður nefndi. Mér finnst athyglisvert og er það sem ég var að meina með væntingastjórnun, að hér er í rauninni verið að taka dæmi sem nefndarmenn sjá ástæðu til að nefna, þarna er um að ræða 6,3 milljarða kr. verkefni á Kjalarnesi sem, með leyfi forseta, „tekur mið af vegabótum á Kjalarnesi, eina af lægstu upphæðunum sem tengjast verkefnum sem meiri hlutinn leggur til að verði stjörnumerkt“. Það er sem sagt verið að gefa væntingar um að hér sé eftir miklu meiru að slægjast og það kann að vera rétt. En þá velti ég fyrir mér niðurröðun á því varðandi samgönguáætlun og væntingar um hana. Auðvitað er það þannig að ef við segjum bara að Hvalfjarðargöng t.d. væru á samgönguáætlun og þau væru tekin yfir og það væri gert ráð fyrir t.d. 20 milljörðum í það verkefni, þá væri ljóst að það væri veruleg búbót fyrir samgönguáætlun. Það má til gamans nefna að þá mætti nýta þá fjármuni sem eru komnir á annað borð inn í samgönguáætlun í t.d. þjóðhagslega mikilvæga innviði eða velja önnur göng t.d. annars staðar á landinu sem augljóst er að verður ekki farið í á markaðslegum forsendum heldur í rauninni með beinum styrk frá ríkinu. Vil ég þar t.d. nefna Fljótagöng.