157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:58]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, nú skil ég betur hv. þingmann. Það er nefnilega alveg rétt að ef innviðafélagið færi í að gera þennan hluta hringvegs um Kjalarnes myndi losna um þessa peninga fyrir önnur verkefni. Hins vegar í þessu tiltekna dæmi mun það aldrei fara inn í innviðafélagið vegna þess að skilyrði innviðafélagsins eru þau að það verður að vera hægt að fara aðra leið. Það er ekki hægt að fara aðra leið í þessu tilfelli þannig að þetta verkefni mun aldrei fara inn í innviðafélagið, sú von er úti. Þarna er verið að tala um að það gæti myndast svigrúm sem er ekki að fara að gerast af því að þessi framkvæmd fellur ekki undir innviðafélagið, við getum kannski bent meiri hlutanum á það ef þetta var sagt í nefndarálitinu. En hins vegar er hætta á því að aðrar framkvæmdir sem er áætlað að fari inn í innviðafélagið muni ekki fara þangað inn og þá erum við komin í öfugt dæmi, þá myndast ekki svigrúm heldur minnkar svigrúm fyrir þær framkvæmdir sem er búið að segja okkur að eigi að fara í. Þetta gengur auðvitað í báðar áttir. Ef innviðafélagið tekur meira þá myndast meira svigrúm. Þetta var eina dæmið sem var tilgreint að væri möguleiki og það liggur núna fyrir að það er ekki möguleiki á að það fari inn í innviðafélagið. Við verðum bara að vona að önnur verkefni í samgönguáætlun sem þau gera ráð fyrir að falli undir innviðafélagið, við verðum að vona að það sé staðan, af því að annars verður farið í enn minni framkvæmdir en gert er ráð fyrir núna.