157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:00]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla nú að taka undir þau sjónarmið sem hér hafa komið fram um að það geti verið skynsamlegt að fara í einhvers konar innviðafélag sem tekur að sér verkefni. Ég hef aftur á móti verið að horfa á þetta frekar á stærri skala og þá horfandi til þess — hv. þingmaður nefndi oft hvað væru arðsömustu verkefnin. Öll verkefni í samgöngumálum eru náttúrlega með arðbærustu framkvæmdum sem við getum farið í þjóðhagslega og svo sýnist sitt hverjum eftir því hvar hann býr á landinu og alls staðar eru þetta mjög krefjandi aðstæður. Ég held að ef það er verið að horfa á þetta þannig þurfi að horfa á þetta á miklu stærri skala heldur en verið er að gera, utan um einhver einstök verkefni sem eigi svo að fá eitthvert ríkisframlag, mögulega eigi að byggja sér svo einhverja innheimtu samhliða því. Það er alveg ljóst að umferðin er langmest hér á suðvesturhorninu og ef við ætlum að hafa gjaldtökuna sanngjarna verðum við að ná í mikla umferð, þá geturðu náð miklu sanngjarnari gjaldtöku. Ég hef verið að horfa á þetta þannig að við eigum að hugsa stærra og gera meira. Við höfum farið í mjög óhagkvæmar framkvæmdir og þá erum við í þessum stöðuga bútasaumi. Það væri annað ef við værum komin með félag sem byggði á nýju módeli í gjaldtöku þar sem við myndum leggja af kílómetragjald og til að mynda lækka vörugjöld á bifreiðar, vera síðan með mjög sanngjarna gjaldtöku fyrir þá sem þurfa að fara oft um en erlendir ferðamenn, einskiptisnotendur, sem eru að uppistöðu erlendir ferðamenn, myndu greiða hátt gjald eins og við þekkjum úti. Þetta reiknimódel var skoðað dálítið 2017 og hefði getað gengið upp. Menn gætu verið að hugsa miklu stærra, farið í miklu öflugri og stærri og meiri framkvæmdir þar sem jafnvel erlendir verktakar myndu koma að með íslenskum verktökum í að byggja kerfið okkar hraðar. Aðeins velta vöngum yfir þessu með hv. þingmanni.