157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:02]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta eru mjög skemmtilegar vangaveltur og pælingar hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni, sem er greinilega búinn að kynna sér þetta mikið og ég er sammála honum í eiginlega einu og öllu. Við getum ekki alltaf bara skattlagt fólk meira og meira. Við þurfum að draga úr og, eins og hann segir, ef það er hægt að vinda ofan af þessu kílómetragjaldi þá held ég nú að ferðaiðnaðurinn yrði ánægður með að borga bara meira fyrir þá vegi sem hann notar, fyrir utan Íslendinga alla.

Varðandi það að hafa þetta sanngjarnt er ég sammála því að það er ekkert mál, t.d. með því að hafa einhvers konar hámark ef þetta snýst um að þú búir einhvers staðar og þurfir að fara oft í gegn, þá borgar þú bara upp að ákveðnu hámarki. Ég er sammála því að það er örugglega ekkert mál að útfæra þetta og hv. þingmaður hefur sennilega séð útfærslur. Það sem er hins vegar vandamálið núna er að ríkisstjórnin er komin í svo mikil vandræði og þau ætla einhvern veginn að blanda fjárhagslegum vandræðum sínum inn í þetta innviðafélag og fara í eitthvert bókhaldsmöndl. Í staðinn fyrir að vera bara ákveðin og fara í þær framkvæmdir sem þau vilja fara í, hagkvæmar framkvæmdir, og láta innviðafélagið byrja að vinna, eins og hv. þingmaður sagði, jafnvel á stærri skala, þá eru þau að reyna að taka þessi óarðbæru verkefni og blanda þeim inn í hin til að búa til einhvern pakka þar sem stærri hlutinn fer undir þennan C-hluta ríkissjóðs, þannig að skuldirnar sem verða til eru auðvitað miklu meira faldar. Auðvitað má þá segja: Af hverju er ríkið að reka þetta ef þetta á að vera alveg á markaðsforsendum? Það er að hluta til til að fela hluta af skuldunum, af því að annars gætum við bara farið í innviðafélag sem væri kannski meira sjálfstætt og þá værum við ekki, skattgreiðendur, að taka áhættuna. Alveg eins og í Hvalfjarðargöngunum þar sem voru einkaaðilar og þeir tóku alla áhættuna.