samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Já, það er bara útfærsluatriði hvernig eignarhaldi verður háttað á svona félagi. Við erum auðvitað með ákveðið módel í meginflutningskerfi raforku þar sem við erum með fyrirtæki sem heitir Landsnet, sem er jú í eigu þjóðarinnar, á og rekur meginflutningskerfið, og svo erum við með dreifiveitur sem dreifa þessu út til hinna dreifðu byggða á lægri spennu. Þetta gengur ágætlega og menn eru með einhvern dreifikostnað í raforku og sammála um það og í stað þess að byggja upp eitthvert eyjafyrirkomulag í raforkunni, þar sem hver svæði væru bara sjálfu sér nóg, þá fóru menn í þetta landsdekkandi. Það er á þessum forsendum svolítið sem ég er að nálgast þetta. Fjármögnunin gæti verið blönduð innan lands og erlendis í áætluninni. Það verður þó alltaf að hafa í huga með til að mynda Hvalfjarðargöngin að fjármögnun þeirra hjá Speli var breytt, held ég 2006, úr erlendum lánum í innlend lán. Við værum sennilega enn að borga af Hvalfjarðargöngunum ef menn hefðu ekki dreift þessari gengisáhættu. Þar höfum við fordæmin sem við þurfum að varast. Það er gríðarlega mikil eftirspurn eftir því hjá til að mynda lífeyrissjóðum að koma myndarlega að þessari uppbyggingu með sitt fé til langtímaávöxtunar. Svo geta verkefni verið valin af þinginu, þ.e. einhvers konar forgangsröðun, og þar verður þá eflaust eitthvað tekist á um þetta. En að fjármögnunin fari af stað um allt land samhliða því að verkefnið er í uppbyggingu, það var grundvöllurinn að því að þeir gætu haldið gjaldinu lágu. Og ég tek undir það með hv. þingmanni þegar hún nefndi það hér áðan (Forseti hringir.) að það er útilokað að hugsa þetta út frá því að það sé alltaf hægt að fara aðra leið. Það er reyndar alltaf hægt að gera það á Íslandi. Það er alltaf hægt að fara hinn hringinn.