157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:07]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Já, ég held einmitt að við ættum að nýta þetta tækifæri ef við erum að fara að stofna innviðafélag til að auðvelda eða liðka fyrir erlendri fjárfestingu því að þá kemur þekkingin með. Það er nefnilega mjög áhugavert að í umsögnum við þetta frumvarp var bent á það að með örlitlum lagabreytingum eða með því að gera lagabreytingar samhliða væri hægt að liðka verulega fyrir erlendu fjármagni, fjárfestingu, inn í landið. Ég held að í arðbærum innviðaverkefnum verði ekki mikið vandamál að fjármagna á hagstæðu verði og einmitt fá aðila með þekkingu á risaframkvæmdum að borðinu. Þannig að ég er sammála því að það sé alltaf bara útfærsluatriði hvernig eignarhaldinu er háttað en held að við þurfum alltaf að spyrja okkur: Þarf ríkið að eiga þetta, þarf ríkið að reka þetta og erum við að fara í samkeppnisrekstur við einhvern? Í þessum stóru framkvæmdum, sem eiga að vera á markaðsforsendum, finnst mér alveg eðlilegt að ríkið eigi svona innviðafélag en mér finnst líka eðlilegt að ríkið útvisti eins og var gert með Hvalfjarðargöng. Það er kannski bara matsatriði hverju sinni. Ég held að við séum nokkuð sammála um að við viljum heilt yfir eiga lykilinnviði hérna í landinu, jafnvel þó við fáum þá til baka eftir 20–25 ár, en við þurfum kannski ekki að fara til baka í það að reka alls konar smásöluverslanir og annað. Ég held bara að þetta sé, eins og hv. þingmaður segir, útfærsluatriði. Það er auðvelt að klúðra þessu en það er líka auðvelt að gera mjög góða hluti með nýju innviðafélagi.