157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:09]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ég hef fjallað svolítið um þessar hugmyndir um að breyta gjaldtöku af umferð, notkun farartækja og notkun vega. Ég tel að þær leiðir sem aðrar þjóðir hafa varðað í þessu geti verið okkur til fyrirmyndar í þeim efnum. Það er engin tilviljun að þessar þjóðir hafa þróað með sér kerfi sem hefur skilað miklum árangri og slíkt kerfi myndi þýða fyrir okkur Íslendinga, með þennan vaxandi ferðamannastraum sem hér er, að við myndum fá mjög aukna þátttöku ferðamanna sem m.a. skapa þetta álag á vegakerfinu. Við myndum fá þátttöku þeirra til að byggja upp vegakerfið okkar hraðar og betur heldur en gerist með núverandi kerfi.

Mig langar aðeins að víkja máli mínu núna að höfuðborgarsvæðinu í þessari stuttu ræðu og þörfinni á í raun algjörri byltingu þar í hugsun, einnig í samgöngumálum. Hér hefur verið við völd í áratugi nánast óslitið meiri hluti vinstri manna, undir forystu Samfylkingar, með þátttöku Viðreisnar og fleiri flokka. Þar hefur verið algjört bann við að fara í þekktar lausnir einmitt þar sem umferð er að þyngjast eins og mislæg gatnamót sem hægt er að byggja á plani, þ.e. þú tekur bara aðra akreinina undir, ert ekki að byggja há mannvirki upp í loftið. Svo eru menn með einhverjar hugmyndir um það hvernig eigi að byggja upp þessa borgarlínu og eitthvað slíkt. En við erum stöðugt að brenna okkur á því að bruðla mikið í samgöngukerfinu okkar. Við sjáum bara hvers lags geggjuð leið var farin í því að byggja Ölfusárbrú og nú er hluti af þessari borgarlínu Fossvogsbrú sem upphaflega átti að kosta rúma 2 milljarða, á núvirði kannski rétt um 3, en er komin í 10 milljarða. Við erum að moka einhvern veginn peningum út um gluggann, vitandi það að það er hægt að gera þetta með einfaldari og ódýrari lausnum og miklu hraðvirkari. Það á við í þessari borgarlínu líka.

Það hefur verið mikið talað um þjóðhagslega hagkvæmni samgöngumannvirkja. Það er sennilega hvergi eins mikil þjóðhagsleg hagkvæmni í því að eyða ljósastýrðum gatnamótum á höfuðborgarsvæðinu og þá sérstaklega í Reykjavík. Ég er að hugsa til að mynda um Miklubraut–Kringlumýrarbraut, Háaleitisbraut–Miklubraut og Grensásveg–Miklubraut, jafnvel Lönguhlíðina. Þetta eru slysamestu gatnamót landsins. Slysaminnstu gatnamót landsins eru þau fjölförnustu, sem eru mislægu gatnamótin þar sem þú kemur niður Ártúnsbrekkuna yfir Reykjanesbrautina. Þetta er gríðarlegur samfélagslegur kostnaður. Ég minnist þess að hafa látið reikna það einhvern tímann út hvað það tæki samfélagið langan tíma að borga upp til að mynda mislæg gatnamót þar sem slysin eru mest á ljósastýrðum gatnamótum í dag. Það tæki svona þrjú ár sem það væri í raun búið að borga sig upp út af fækkun slysa. Slys á fólki verða auðvitað ekki nærri alltaf metin til fjár og verða aldrei metin til fjár í mörgum tilfellum.

Það er svo sem ekki tekið mikið á þessu í höfuðborgarsáttmálanum en það ber auðvitað að fagna því núna að það skuli vera komin rík samstaða um það hér á höfuðborgarsvæðinu að taka þetta upp og reyna að fara að horfa á þetta með skynsemisaugum. Ég held að ef við hefðum horft á það sem hægt að gera með þær lausnir sem hafa verið lagðar á borðið af kunnáttumönnum á þessu sviði, mjög miklum kunnáttumönnum sem hafa ítrekað lagt fram sínar tillögur byggðar á ítarlegum rannsóknum í sambærilegum borgum erlendis — þetta er svona dæmigert um þetta bruðl að horfa ekki til þess. Ég held að ef menn ná að blanda saman einhvern veginn, við getum sagt afkomu ríkisins auðvitað af þessum verkefnum öllum, þessu stóra máli á höfuðborgarsvæðinu og um allt land, í samstarfi við einkaaðila, hvort sem það gerist með útvistun verkefna eða stærri útboðum þar sem innifalin er hönnun og lausnir sem eiga að leysa vandann sem er verið að fókusera á, þá held ég að við getum náð miklu meiri árangri. Fyrir utan það hvað við myndum geta með breyttu innheimtukerfi náð miklu augljósari fjármögnun í lengri tíma þar sem menn gætu verið að fara þá í miklu stærri verkefni. Þetta er ég að vonast til að muni gerast hér á höfuðborgarsvæðinu núna í framhaldi af þessari endurskoðun og á auðvitað heima í þessum verkefnum úti um allt land.