samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Við höfum nú rætt nokkrum sinnum um þau tækifæri sem felast í því að auka umfang verkefna og bjóða út stærri pakka, t.d. veg sem er í 300 m hæð og annan á láglendi þannig að verktaki geti hnikað vinnuflokkum á milli láglendisvegar og hálendisvegar til að ná sem bestri nýtingu með tilliti til veðurfars og þar fram eftir götunum.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann í fyrra andsvari, svona í ljósi fyrri reynslu sem samgönguráðherra þess tíma — ég man ekki hvaða ráðherraheiti það var, það er búið að hringla svo mikið í þeim, samgönguráðherra skulum við kalla það. Mig minnir samt einhvern veginn að titillinn hafi verið annar. (JGunn: Sveitarstjórnar.) Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, alveg rétt. Var lagt eitthvert mat á þeim tíma í ráðuneytinu á það hversu miklum viðbótarárangri væri hægt að ná fyrir sömu krónuna ef mönnum tækist að koma útboðsverkum Vegagerðar eða innviðafélags, ef það var rætt eða hver sem aðilinn, verkkaupinn, væri þannig fyrir og hver tækifærin væru sem lægju í því að ná að stækka útboðspakkana þannig að fyrirsjáanleikinn væri meiri, afskriftir gætu átt sér stað yfir lengri tíma innan verka og þar fram eftir götunum? Var eitthvert slíkt mat unnið? Manni finnst í raun blasa við, og það væri svona næstum því hægt að reikna sig niður á það, hversu miklum viðbótarárangri væri hægt að ná fyrir hvern milljarð sem tekinn er af skattborgurum þessa lands til vegagerðar ef við breytum þessari nálgun eins og hv. þingmaður hefur reglulega talað um. Þá skiptir það ekki öllu máli hvort það séu verk sem eru unnin á grundvelli veggjalda eða með hefðbundinni fjármögnun samgönguáætlunar.