samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið og þessar vangaveltur sem eru einmitt mjög góðar. Já, það var svolítið pælt í þessu. Auðvitað höfðum við of skamman tíma í þessu ráðuneyti á sínum tíma en ég fékk Eyjólf Árna Rafnsson, fyrrverandi formann Samtaka atvinnulífsins, sem var þá nýgenginn frá Mannviti, verkfræðistofu sem forstjóri, og fleiri góða menn, Gísla Gíslason, sem var nú hjá Speli og var einn af frumkvöðlunum í því að byggja göngin, þeir voru m.a. í þessum hóp sem var að skoða þetta. Auðvitað blasir þetta við. Þetta blasir einmitt svo augljóslega við öllum þeim sem þekkja eitthvað til reksturs að með því að geta verið með verk fyrir framan sig sem tekur næstu fjögur, fimm árin, þá getur þú fjárfest í tækjum og mannskap og öðru til að halda samfellu í gangi allan tímann. Þarna var ekki byrjað að tvöfalda veginn milli Hveragerðis og Selfoss en þarna voru hugmyndir uppi um að taka það allt saman bara í einu verki, ekki þremur bútum. Ég man eftir því að ég hitti einu sinni verkfræðing sem var yfir þessu verki í þriðja áfanga í þessari tvöföldun á sínum tíma og hann sagði mér: Bara ef það hefði verið boðinn út annar og þriðji áfangi saman á þeim tíma, þá hefðu sparast 500 milljónir. Ef þú getur boðið þetta út svona í einu verki — það var hugmyndin, að fara frá Hveragerði eða Kambarótum austur fyrir Selfoss með mislægum gatnamótum, ekki þessu hringtorgabixi, með brúna yfir Ölfusá og alveg austur fyrir Þjórsá. Það átti líka að taka Kjalarnesið og taka það ásamt 1+2, alveg upp í Borgarnes. Þetta væru bara sömu verkin, unnin á einhverjum tíma. Fjármögnunin væri fyrirséð. Það yrði gríðarlegur sparnaður. Þetta er eins og jarðgangagerð í vegagerð í tölum, alvörujarðgangagerð í vegagerð, sem þýðir það að erlendir verktakar munu koma að svona verkum með íslenskum verktökum (Forseti hringir.) og þar með munu hlutirnir geta gengið miklu hraðar fyrir sig því að getan hjá okkur er takmarkandi í svona stórum verkefnum innan lands.