157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið við andsvari mínu. Í seinna andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann um veggjöld. Við sátum saman í umhverfis- og samgöngunefnd 2017–2021. Þá voru veggjöld rædd töluvert og það var stundum aðeins slegið í og úr varðandi það atriði sem snýr að því hvort það yrði stigið til baka í annarri gjaldtöku yrðu veggjöld innleidd í einhverjum mæli. Ég hef verið þeirrar skoðunar að það sé lykilatriði, þannig að við séum að leggja meiri áherslu á þessa fáskiptis- og einskiptisnotendur, ná meiri tekjum af þeim, dálítið eins og gert var í Hvalfjarðargöngunum. Ég spyr, af því að við höfum ekki rætt þetta lengi: Hvert er mat hv. þingmanns á þessu atriði er varðar það að stíga til baka með almenna gjaldheimtu, þessa hefðbundnu, sem væri þá í dag kílómetragjaldið t.d., að fasa það eitthvað niður, eða aðrir gjaldstofnar eftir atvikum? En punkturinn er að stíga til baka með aðra gjaldtöku á móti sértækri gjaldtöku eins og veggjöldum.