157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:21]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað algjört grundvallaratriði. Það eru auðvitað ákveðin þolmörk og við erum löngu komin fram úr þeim þegar kemur að gjaldtöku af bifreiðum og umferð. Þetta þarf í sjálfu sér ekki að vera neitt flókið. Við skoðuðum þetta ágætlega á sínum tíma og menn voru þá að reikna út að gjaldið þyrfti að vera svona 150 kr., sem gætu verið 180–190 kr. í dag fyrir hverja ferð. Hugmyndin var auðvitað sú að það yrði ákveðinn tímasparnaður mjög fljótlega sem væri farinn að vega upp þennan viðbótarkostnað, bæði eldsneytis- og tímasparnaður. Ég held að það eigi að fella niður kílómetragjaldið, sem er náttúrlega hvergi notað í heiminum nema á Íslandi, og vera með mismunandi gjaldskrá fyrir þá sem eru að fara oft um og svo þessa einskiptisnotendur, þeir greiddu orðið 2017, 2018, um 40% af tekjum Spalar í Hvalfjarðargöngin. (Forseti hringir.) Uppistaðan erlendir ferðamenn. Síðan hefur ferðamannastraumurinn bara aukist. Þá sjáum við það að varlega áætlað, (Forseti hringir.) miðað við þær forsendur, þá megum við reikna með því að þessir einskiptisnotendur borgi 40% af uppbyggingu á vegakerfinu. Við erum ekki að ná því í gegnum kílómetragjald nema bara að hluta til vegna þess að þar er gjaldskráin sú sama fyrir alla.

(Forseti (HildS): Forseti beinir því til þingmanna að virða ræðutíma.)