samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það var mjög áhugavert að heyra hv. þingmann tala um mikilvægi slysavarna og mikilvægi þess að reikna áhrifin af slíku inn í þær ákvarðanir sem teknar eru. Hv. þingmaður færði fyrir því prýðisgóð dæmi. Vandinn við þetta er auðvitað sá að það er erfitt að setja tölu á. Það er erfitt að meta nákvæmlega þessi áhrif. Tilhneigingin er sú hjá fjármálaráðuneytinu og öðrum ráðuneytum svo sem líka að vilja ekki taka með í reikninginn eitthvað sem þau telja sig ekki geta sett ákveðna tölu á. Ég minnist þess að fyrir meira en 20 árum, ég held að þetta hafi verið 2002 eða eitthvað slíkt, var umfjöllun um það í Bretlandi að þarlend stjórnvöld væru að reikna ákveðið verð á mannslíf. Þetta kann að virðast nokkuð kaldlynt, mannslíf hljóti að vera ómetanleg. En þetta var gert í þeim tilgangi að geta svo tekið þær ákvarðanir, farið í þær fjárfestingar sem björguðu sem flestum lífum og ekki hvað síst í umferðinni. Ég man ekki hversu mörg hundruð þúsunda punda á sínum tíma hvert mannslíf var áætlað á og þá var einfaldlega reiknað og metið hversu mörgum lífum það myndi bjarga að fara í þessa aðgerð og forgangsraða með þeim hætti. Ég er ekki að leggja það endilega til hér en vildi undirstrika það sem hv. þingmaður sagði um mikilvægi þess að líta á þessa óáþreifanlegu þætti.
En þá kem ég að spurningunni: Getur hv. þingmaður tekið undir það með mér að slík áhrif, óáþreifanleg áhrif sem er erfitt að setja ákveðna tölu á, eigi líka við í samgönguframkvæmdum á landsbyggðinni þar sem framkvæmdin getur haft gríðarleg áhrif á það hvort heilu byggðarlögin lifi eða deyi, hvort þar verði til aukin verðmæti, hvort fólk vilji flytja þangað o.s.frv.? Það er erfitt að setja nákvæma tölu á það en þurfum við ekki að taka tillit til þess þegar við erum að ákveða framkvæmdir á landsbyggðinni?