157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, svo sannarlega. Ég held að það sé allt of lítið gert af þessu. Það er auðvitað eins og hv. þingmaður kemur inn á, erfitt að leggja mat á þetta, getur verið svolítið kalt, en þetta er samt gert, að leggja mat á mannslíf en svo eru náttúrlega örkuml og slys og eignatjón. Það er hægt að meta þetta og menn gera það með einhverjum forsendum. Svo getur matið verið eitthvað misjafnt eftir því hverjir eiga í hlut, ekki það að það skipti máli hvað þeir kjósa en það geta verið svo margir þættir sem spila inn í það.

Ég nefndi hérna tölur varðandi mislæg gatnamót, hvað þau myndu leysa. Þau myndu líka hafa leyst gríðarlegan umferðarvanda. Við sáum það þegar gatnamótin við Bústaðaveg voru lokuð, inn á Bústaðaveg, um tíma, þá greiddist ansi vel úr umferðinni eftir Reykjanesbraut á Sæbrautinni, það var bara gjörbylting. Þú þarft ekki nema kannski þrjár, fjórar slíkar framkvæmdir, ef við hefðum nú komist í það með þessa vinstri flokka. Þá kemur að þessu sem þingmaðurinn spyr um, arðsemi þess að byggja upp vegakerfið úti á landi. Jú, við erum í stóru landi. Við erum fámenn þjóð í stóru landi. Við byggjum okkar samfélag á nýtingu náttúruauðlinda. Náttúruauðlindirnar eru fyrst og fremst nýttar úti á landi þar sem verðmætasköpunin verður, þar verða verðmætin til. Það verða bara bein arðsemisáhrif, beinn hagvaxtarauki, af því að efla samgöngukerfið úti um land. Þess vegna kom ég inn á það aðeins í andsvari áðan að það er mjög mikilvægt að menn átti sig á því að umferðarþunginn er svolítið hér á suðvesturhorninu og ef við ætlum að ná þessum árangri úti um allt land þá verðum við að horfa á þetta sem eina heild. (Forseti hringir.) Við verðum að horfa á kerfið sem eina heild þannig að það flæði um fjármagn á fjölmennu leiðunum úti um land. (Forseti hringir.) Öðruvísi náum við ekki þessum nauðsynlegu hagvaxtaráhrifum sem við erum að kalla eftir með bættum samgöngum um allt land.