samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég er bara nokkuð ánægður með þetta svar hv. þingmanns og tími er auðvitað eitt af því sem kemur við sögu þegar menn reyna að reikna hagkvæmni framkvæmda, hversu mikinn tíma það sparar og fyrir hversu marga og hvaða verðmæti geta orðið til á þeim tíma. En af því að við náum ágætlega saman, heyrist mér, um mikilvægi þess að huga að slíkum þáttum vil ég spyrja: Finnst hv. þingmanni nógu mikið hafa verið gert í þessari samgönguáætlun til að huga einmitt að þessu? Öryggi er nú nefnt sem ein af meginforsendunum. Ég held að það sé nefnt sem atriði nr. 1 og við getum eflaust tekið undir það, en hvað varðar þær leiðir sem eru farnar í þessari áætlun til að meta hagkvæmni samgöngumannvirkja og forgangsraða, telur hv. þingmaður að það hafi tekist sem skyldi í þessari áætlun?