157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:29]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég held almennt séð að við höfum einmitt ekki tekið nægilega mikið tillit til þessara þátta. Ég held að það sé í raun alveg nauðsynlegt að horfa meira til þessara þátta þegar við erum að horfa á arðsemi verkefnanna. Þess vegna er svo mikilvægt að hugsa út fyrir boxið, eins og maður getur sagt, um hvernig við ætlum að standa að uppbyggingu vegakerfisins. Ég tel að sú aðferðafræði sem við höfum verið að byggja á, ekki bara núna í þessari samgönguáætlun heldur í mörgum öðrum samgönguáætlunum hér á undan sem alltaf byggja á þessari sömu aðferðafræði — við erum að gefa fólki svo miklar væntingar hér og þar og svo eru þær að rofna. Það sem er á öðrum framkvæmdaáfanga og þriðja og fjórða, þetta rofnar allt saman á leiðinni og fólk er hætt að hlusta á okkur. Við verðum að breyta algerlega um hugsun. Við, pólitíkin, skuldum þjóðfélaginu það og íslensku samfélagi að koma okkur saman á miklu víðtækari grundvelli um það hvernig við ætlum að ráðast í þetta gríðarstóra verkefni. (Forseti hringir.) Það er sennilega ekkert verkefni, ef við horfum á heildaryfirlitið, sem yrði eins mikill þjóðhagslegur ábati af (Forseti hringir.) eins og að efla samgöngumannvirki um land allt og þá í öllu tilliti; út frá tíma, út frá slysum o.s.frv.