157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:33]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Því miður, þó að ég leggi mig almennt mjög fram um að hlusta á ræður virðulegs forseta, Hildar Sverrisdóttur, vegna þess að þær eru nú fáar betri haldnar hér í þessum þingsal, þá hef ég misst af þessari. En hún er náttúrlega til á upptöku þannig að ég mun örugglega leggja mig fram um að skoða það.

Þetta er bara útfærsluatriði. Aftur þá vil ég koma að því að við höfum reynslu af útfærslum á sambærilegum lausnum hér innan lands. Ég nefndi áðan Landsnet, Rarik, sem er með dreifikerfi raforku. Við erum svo með Spalar-módelið sem gekk hér bara alveg ágætlega og reyndar mjög vel. Síðan getum við litið til annarra þjóða. Norðmenn eru mjög mikið í verkefnum af þessu tagi þar sem þeir eru með verkefni tengd viðbótargjaldtökum. Grundvallaratriðið er auðvitað þetta: Ég hef alls ekki trú á þessari vegferð ríkisstjórnarinnar þegar kemur að þessu innviðafélagi. Ég er sammála þessari hugmyndafræði en mér finnst útfærslan vera einhvern veginn í skötulíki. Það er eins og menn hafi bara ekki komið sér niður á einhverja niðurstöðu um það hvernig þeir vilja hafa þetta. Þetta er allt opið í alla enda og óútfært. Það er auðvitað algjörlega óásættanlegt. Ég held að menn þurfi að stíga skrefið miklu stærra og ég held að menn þurfi — vegna þess að almennt séð í umræðunni núna um þessa samgönguáætlun, sem er út af fyrir sig mjög merkileg umræða. Hún er mjög merkileg, þessi umræða, allt öðruvísi heldur en umræður hafa oft verið um samgönguáætlanir, vegna þess að við erum sammála um grundvallaratriðin, að fara meira í útvistun verkefna, að fara í eitthvert félag sem heldur utan um það. Það er breið sátt um það. Það er nýtt.