samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held að það sé rétt metið hjá hv. þingmanni að það er óvenjulegt hvað þetta umræðuefni varðar að það er líklega tiltölulega breiður vilji um að nálgast svona verkefni upp á nýtt. Ég er líka sammála hv. þingmanni um að þetta frumvarp, eins og það er skrifað, sé bara ekki fullbúið. Það þarf að vinna þetta mál betur.
Mig langar hins vegar að fara yfir í allt annað núna við hv. þingmann á þessum sekúndum sem ég á eftir. Það er náttúrlega til þetta hugtak sem allir þekkja, sem er greiðsluvilji. Hér er verið að leggja til hugmynd sem, eins og ég segi, þarf að þróa betur, en jafnvel þótt hún verði þróuð betur og hún verði að veruleika og við förum að taka hér einhver veggjöld á hinum ýmsu leiðum, þá er eitthvað til sem heitir greiðsluvilji. Er það mat hv. þingmanns að sá greiðsluvilji sé til staðar ofan á allt hitt sem búið er að vera að gera af þessari ríkisstjórn? Kílómetragjaldið, sem er náttúrlega bara einhvers konar, ég held það hafi verið orðað þannig af einhverjum þingmanni, (Forseti hringir.) geymasýra — það er hraust hægri höndin á frú forseta — og vörugjöldin o.s.frv. Er þessi greiðsluvilji, að mati hv. þingmanns, til staðar ofan á allt hitt?
(Forseti (HildS): Forseti biðst afsökunar á þessu hressilega bjölluspili.)