samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Nei, það er auðvitað grundvallaratriði, ef við ætlum að stíga stór skref, að hugsa þessa gjaldtöku alveg upp á nýtt. Ég lenti í því að selja bíl svona sirka 25. janúar, þ.e. þá tek ég bíl upp í í bílaviðskiptum. Innan við tveim vikum seinna sel ég þennan bíl. Hann fór aldrei út af bílasölunni. Það var auðvitað tilkynnt kílómetrastaðan á honum þegar ég tók hann upp í en ég þurfti að borga 100.000 kílómetragjöld til að geta látið viðskiptin ganga eftir þegar ég seldi hann. Ég er ekki farinn að sjá neina endurgreiðslu eða einhverja leiðréttingu frá þessum skatti. Ég er algerlega kolruglaður í öllum þessum gíróseðlum sem eru að koma. Nú erum við með tvo bíla á heimilinu og það eru bara stöðugt einhverjir gíróseðlar að koma. Maður hefur enga stjórn á þessu, enga yfirsýn yfir þetta. Maður hefur ekki hugmynd um í raun hvað maður er að borga; einhverjar áætlanir út og suður. Þetta er auðvitað algerlega galið kerfi. En þetta er svo makalaust með þessa blessuðu hæstv. ríkisstjórn sem er við völd að hún hugsar aldrei í almennilegum lausnum. Hún hugsar bara um það hvernig hún geti skattpínt. Það er alltaf tekin ákvörðun um einhverja fjármálaáætlun og svo bara sagt: Hvar eigum við að leggja á til að ná þessu? Þetta er auðvitað kolröng nálgun og það verður að endurhugsa kerfið alveg upp á nýtt og ná miklu meiri samfélagslegri sátt um þær leiðir sem við förum.