157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:39]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Í ljósi síðustu orðaskipta þá verð ég að leyfa mér að taka undir — þó að ég sé ekki lengur í andsvörum við hv. þm. Jón Gunnarsson — með hv. þingmanni: Auðvitað er ekki til staðar greiðsluvilji án einhverra mótvægisaðgerða. Það held ég að liggi fyrir. Það er alveg sama, frú forseti, hvert maður kemur orðið. Jafnvel þeir sem, eftir því sem ég skynja, eru í minni hluta og styðja þetta kílómetragjald — því miður er allt að ganga eftir sem við ræddum á sínum tíma fyrir síðustu áramót; það er ekki endalaust hægt að bæta á og reikna með að þegnar þessa lands taki þessu öllu saman þegjandi bara vegna þess að þeir fái vegbætur.

Ég hef sjálfur verið í samskiptum til að mynda við verktaka — af því að hv. þingmaður tilgreindi að á hans heimili væru tveir bílar og hann væri hættur að skilja í þessum gíróseðlum öllum. Þegar maður fer að tala við verktakana sem eiga fjöldann allan af mismunandi ökutækjum, og ég tala nú ekki um bílaleigurnar, þá er flækjustigið orðið algerlega galið og hreinlega þarf orðið að ráða fólk inn í fyrirtækin bara til þess eins að eiga við Skattinn. Varla var það markmiðið með þessu og það hefur svo í ofanálag, frú forseti, kostað það að það hefur orðið að fjölga stöðugildum hjá Skattinum. Varla var markmiðið að fjölga starfsfólki hjá Skattinum.

Mig langar aðeins, frú forseti, í framhaldi af þessari umræðu um greiðsluvilja að — ég er einn af þeim sem eru hrifnir af því að við reynum að hugsa nálgun okkar í því hvernig við getum hraðað framkvæmdum og samgöngumannvirkjum svolítið upp á nýtt. Það er augljóst að það kerfi sem við höfum búið við undanfarin ár er ekki að skila sér. Á sínum tíma var lögum um opinber fjármál breytt og markaðir tekjustofnar voru ekki heimilir, það var ekki heimild fyrir mörkuðum tekjustofnum. Þar af leiðandi eru þessar aðgerðir til að fjármagna uppbyggingu samgöngumannvirkja afskaplega ómarkvissar.

Þessa sögu má rekja allt aftur til þess þegar bifreiðagjaldið var sett á. Þar voru nákvæmlega sömu rök í gangi þá. Bifreiðagjaldið var sett á til að fara í átak í samgöngumannvirkjum. Síðan hafa komið til önnur gjöld í seinni tíma. Við stórhækkuðum eldsneytisgjöld á sínum tíma, við innleiddum svo kílómetragjaldið, þetta stórgallaða kerfi, en lækkuðum þá eldsneytisgjaldið á móti en földum hluta af þeirri lækkun með því að hækka kolefnisgjaldið. Þegar uppi var staðið þá auðvitað lækkaði eldsneytislítrinn alls ekkert eins og til stóð. Það hefur lítið verið rætt um hvernig búið er að fara með kolefnisgjaldið á seldum lítra síðustu ár og þá tugprósenta hækkun sem hefur orðið á því gjaldi.

Ef við ætlum að fá sátt um svona kerfisbreytingu, að fara í að útvista verkefnum í miklu meira mæli, sem ég er ekkert á móti heldur getur það jafnvel verið kostur og laðað að erlendar fjárfestingar, þá verður eitthvað af hinu að fara út á móti. Við verðum ekki með óbreytt bifreiðagjald, þungaskatt, kílómetragjald og vörugjöld og bætum svo líka ofan á það veggjöldum á kannski öllum helstu stóru framkvæmdum sem við hyggjumst fara í á næstu árum eða áratugum.

Einhvern tíma, frú forseti, er nóg nóg. Ég held reyndar að við séum löngu komin yfir það mark en þá verðum við líka að hafa kjark, og sitjandi stjórnvöld, framkvæmdarvaldið, til þess að segja, ef þau vilja fara þessa vegferð: Við ætlum að lækka eitthvað annað á móti, við ætlum að bakka út úr kílómetragjaldinu á móti. Við getum hækkað eldsneytisgjaldið eitthvað í staðinn og menn greiða — af því að það er í tísku að segja að þeir borgi sem nota — bara í staðinn fyrir ákveðna vegkafla. Eini gallinn við þessa hugmyndafræði alla saman er að það er enginn sem ekki notar þetta kerfi. Það er alltaf látið líta þannig út að einhver flutningafyrirtæki, rútufyrirtæki, einstaklingar á sínum einkabíl sem eru að keyra einhverja nýframkvæmd, séu þeir sem eru að nota framkvæmdina. En vörubifreiðin sem er að fara yfir þennan nýja vegkafla er að flytja vörur í búðina sem við kaupum vörurnar í. Það eru fyrirtækin í landinu sem eru að koma vörunni sinni á markað og búa til gjaldeyri. Þannig að mér finnst þessi umræða um að þeir borgi sem nota búin að vera á villigötum alveg síðan þessi tískufrasi heyrðist hér fyrst í pontu, því að það eru allir með einhverjum hætti að nýta samgöngukerfið.