samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég ætla að halda hringferð minni áfram. Ég kláraði Strandir í síðustu ræðu minni og ætla núna að fikra mig niður á Norðurlandið. Það er óhætt að segja að hringvegurinn þar sé með þeim köflum hringvegarins sem þurfi hvað mest að lappa upp á. Það vinnst vonandi jafnt og þétt að einhverju marki næstu árin. En ef við horfum á þessa tengivegi sérstaklega, sem er mjög hátt hlutfall af á Norðurlandi vestra, þá er hér eitt verkefni sem er að sjá fjárveitingar að einhverju marki í fyrsta skipti en, eins og með svo margt annað, afturhlaðið. Það er Vatnsnesvegurinn, sem eru þó 300, 400 og 500 milljóna kr. fjárfestingar við innan framkvæmdahluta áætlunarinnar á ári. En obbinn, 5,5 milljarðar af 7,5 milljörðum, er á öðru áætlunartímabilinu 2031–2035. Það er ekki miklu við þetta að bæta á því svæði sem við köllum Norðurland vestra í daglegu tali. Þetta er svona afturþungt, eins og annars staðar á landsbyggðinni, og í þessu tilviki er þetta eitt verkefni sem nýtur beinna framlaga á samgönguáætlun.
Á Norðurlandi vestra, Húnaþingi vestra og eystra og Skagafirði, eins og ég kom inn á áðan, er mjög hátt hlutfall tengivega og safnvega, tengivega sérstaklega, sem eru ekki með bundnu slitlagi. Það kom upp sú umræða undir lok síðasta kjörtímabils þegar var verið að takast á um samgönguáætlun — eða var það kannski bara á síðasta þingi, þetta rennur nú aðeins saman hjá mér hvorum megin hryggjar það lá — að í ljósi þess að Norðurland vestra, gamla, og Vesturland væru að njóta mjög lítilla framkvæmda á fyrsta áætlunartímabili samgönguáætlunar sem þá lá fyrir, og það eru hóflegar breytingar sem eru að verða í þeim efnum í báðum tilvikum, þá yrði horft til þess að setja meiri þunga úr tengivegapotti inn á þessi svæði. Ég bara vona að ég verði leiðréttur ef mér er að yfirsjást það en ég sé ekki nein áform í gögnum málsins sem benda til þess að það sé hugsunin. Það er í öllu falli ekki í nefndaráliti meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar en það er eitthvað sem gæti verið svona plástur á það sár sem skapast vegna sérstaklega lítilla nýframkvæmda á stofnvegakerfinu, bæði á Norðurlandi vestra og Vesturlandi, eins og ég nefndi hér áðan.
Þessu til viðbótar erum við með mikinn ferðamannaveg frá þjóðvegi 1 út að Hvítserk, norðaustanvert á Vatnsnesinu. Ég er ekki búinn að glöggva mig á því en ég gef mér að það sé fremst í röðinni af þeim framkvæmdum sem þó njóta fjárveitinga hér í áætluninni eins og hún liggur fyrir næstu fimm árin, síðan eiginlega ekki söguna meir. Þess vegna vil ég hvetja hæstv. ráðherra — ef hann hlustar einhvern tímann á þær umræður sem hér eru haldnar því að ekki hefur hann verið í salnum síðan síðari umræða hófst um samgönguáætlun. Það er skynsamlegt, og ég veit að hæstv. ráðherra þekkir þessa umræðu, að stýra hærra hlutfalli tengivegasjóðs inn á þau svæði sem fá rétt til sín stutta stráið varðandi stofnbrautaframkvæmdir næstu fimm ára. Hæstv. ráðherra er þingmaður kjördæmisins þannig að ég vil hvetja hann til þess að horfa til þessarar lausnar sem var bara býsna góð sátt um, þótti mér, þegar var verið að ræða þá samgönguáætlun sem síðast var lögð fram án þess að hún kláraðist. Ég vil nefna þetta í samhengi við áætlunina gagnvart Norðurlandi vestra vegna þess að þar er bæði fátt um fína drætti og það sem er þarna er mjög afturþungt.
Frú forseti. Ég óska eftir að verða settur á mælendaskrá aftur til að halda áfram með Norðurlandið í næstu ræðu.