samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Samgöngusáttmálinn er fyrirferðarmikill í samgönguáætlun þó að það sé kannski takmarkað sem við, kjörnir fulltrúar hér inni, getum komið að því að stýra honum. Samgöngusáttmálinn á að kosta 311 milljarða kr. á næstu árum. Kostnaður við samgöngusáttmálann hefur aukist gríðarlega. Mér þótti athyglisvert að ríkið á að koma með 143 milljarða kr. af þessum 311 milljörðum kr.
Af hverju er það áhugavert? Jú, þetta eru miklir peningar, ríkið á ekki þessa peninga og það liggur ekki alveg fyrir hvernig þetta verður fjármagnað. Það er enn mjög óljóst. Það sem gerir þetta sérstaklega áhugavert er að þetta er sama upphæð og aukning hæstv. ríkisstjórnar á ríkisútgjöldum milli ára. Engin önnur ríkisstjórn hefur aukið ríkisútgjöld jafn mikið milli ára. Hæstv. ríkisstjórn ætlaði að sýna aðhald og taka til. Ef hún hefði staðið við það værum við í nákvæmlega sömu málum en værum búin að borga hlut ríkisins í samgöngusáttmálanum, nákvæmlega sömu upphæð og þeir juku ríkisútgjöld um milli ára.
Það er margt sem vekur athygli þegar farið er yfir samgönguáætlun hæstv. ríkisstjórnar ef maður ber hana saman við fjármálaáætlun og þær yfirlýsingar sem hæstv. ráðherrar hafa gefið um fjármögnun framkvæmda. Eitt sem stendur upp úr er bilið, eða það sem hæstv. ríkisstjórn segir og það sem gögnin segja. Við erum farin að þekkja þetta hér í þingsal. Eitt er sagt en annað gert.
Nú talar hæstv. ríkisstjórn eins og þessar framkvæmdir og allar stórframkvæmdir í samgönguáætlun séu fjármagnaðar — að samgöngusáttmálinn sé fjármagnaður og að samgönguáætlun sé fjármögnuð. Það er talað eins og Sundabraut sé tilbúin og komin af teikniborðinu og eins og Ölfusárbrú sé komin í höfn. Klárlega er talað eins og Fljótagöng séu fjármögnuð.
En þegar við köfum aðeins ofan í þetta kemur í ljós allt önnur mynd. Það kemur í ljós að stærstu verkefnin eiga ekki að vera fjármögnuð innan þess ramma sem hæstv. ríkisstjórn sjálf hefur lagt fram. Þau eiga að fara í sérstakt innviðafélag. Þar er byggt á lántökum og veggjöldum — framtíðartekjum sem eru ekki enn til staðar. Það eitt og sér segir okkur að samgönguáætlun er ekki fjármögnuð. Það er ekki rétt að hún sé fjármögnuð. Hún er ekki fjármögnuð.
Forseti. Byrjum aðeins á því að skoða hvað þjóðinni hefur verið sagt undanfarin misseri. Það er sagt að auknar tekjur þurfi af samgöngum. Svo mikil innviðaskuld hafi safnast upp og þess vegna sé nauðsynlegt að taka meiri pening af þeim sem nota kerfið. Það þurfi að taka pening af þeim eða skattleggja þá sem nota vegina. Eina vandamálið í þessu er að núna greiða allir ökumenn kílómetragjald. Nú eru það ekki lengur bara rafbílar, það eru bensín- og dísilbílar líka.
Það er búið að hækka skatta, til að mynda veiðigjöld. Þau áttu að fara upp í innviðaskuld og samgöngur. Skattar voru hækkaðir um hátt í 30 milljarða kr. og yfirleitt var sagt að þetta færi upp í innviðaskuld. En það er ekki svo mikið sem ríkið ætlar að bæta í þessa samgönguáætlun. Því eru bifreiðaeigendur rukkaðir umfram það sem er sett í samgöngumál. Þetta nýja innviðafélag á að vera hrein viðbót. Það á ekki að draga úr vörugjöldum eða afnema kílómetragjald, bifreiðagjöld eða annað sem lendir á bifreiðaeigendum. Endalaust virðist vera hægt að skattleggja heimili og sérstaklega þegar kemur að bifreiðasköttum.
Alltaf er það sama svarið: Við þurfum meiri tekjur til að bæta samgöngur. Það fer reyndar ekki allt í samgöngur því að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki stjórn á útgjaldavextinum. Þess vegna er báknið fóðrað með aukinni skattheimtu. Við vitum, held ég, öll hvernig sú saga fer: Hærri vextir og verðbólga, allt sem hæstv. ríkisstjórn lofaði að gera ekki.
Nú er ég rétt að byrja og óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá.